fbpx

Viljayfirlýsing um heildarendurskoðun á þjónustu við eldra fólk

Þriðjudaginn 21. júní kl. 15:30 verður Viljayfirlýsing um heildarendurskoðun á þjónustu við eldra fólk undirrituð á Kjarvalsstöðum af ráðherrum félags- og vinnumarkaðsmála, heilbrigðismála og fjármála- og efnahagsmála, Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Landsambandi eldri borgara.   Dagskráin samanstendur af ávörpum frá ráðherrum félags- og vinnumarkaðsmála og heilbrigðismála og undirritun allra viðeigandi aðila. Meðal viðstaddra verður Helgi […]

Styrkveitingar v. félagsstarfs eldra fólks í Reykjavík

Velferðarsvið Reykjavíkurborgar hefur auglýst styrki vegna félagsstarfs eldra fólks af fjárveitingu sem félagsmálaráðuneytið veitti vegna sérstaks átaks í þessum málaflokki. Rýnihópur fer yfir umsóknir og gefur álit sitt á þeim. Fulltrúi LEB er Viðar Eggertsson skrifstofustjóri.

Gagnsæi, siðareglur og tengsl félagasamtaka við viðskiptalífið

Alda - félag um sjálfbærni og lýðræði boðar til málstofu í Veröld, húsi Vigdísar miðvikudaginn 29. júní kl 14:00 til 16:00. Viðar Eggertsson skrifstofustjóri sækir málstofuna f.h. LEB. Rætt verður um siðareglur og gagnsæi í starfi félagsamtaka. Frjáls félagasamtök berjast fyrir mikilvægum hagsmunum og sjónarmiðum, auk þess að móta samfélagsumræðuna. Þess vegna vilja félagasamtök leiða […]

Fundur Kjaranefndar LEB

Fundur kjaranefndar LEB er að þessu sinni haldinn sem fjarfundur. Aðal umræðuefni fundarins verður framhald á viðræðum við verkalýðsforustuna um kjaramál eldra fólks í komandi kjarasamningum. Kjaranefnd LEB: Þorbjörn Guðmundsson, formaður, Reykjavík Jón Ragnar Björnsson, Hella Jóna Ósk Guðjónsdóttir, Hafnarfjörður Ásgerður Pálsdóttir, Blönduós Sigurbjörg Gísladóttir, Reykjavík Varamaður Ingibjörg H. Sverrisdóttir, Reykjavík

Fundur um lífeyrissjóði

Helgi Pétursson formaður LEB á fund með Þóreyju S. Þórðardóttur framkvæmdastjóra Landssamtaka Lífeyrissjóða á skrifstofu hennar að Guðrúnartúni 1, 105 Reykjavík. Fundinn situr einnig Viðar Eggertsson skrifstofustjóri LEB.

360. Stjórnarfundur LEB

360. Stjórnarfundur LEB er haldinn þriðjudaginn 9. ágúst kl. 10.00. Aðalstjórn LEB: Helgi Pétursson formaður Drífa Sigfúsdóttir Sigrún C. Halldórsdóttir Ingibjörg Sverrisdóttir Þorbjörn Guðmundsson Varastjórn LEB: Ásgerður Pálsdóttir Ragnar Jónasson Jónas Sigurðsson

Verkefnastjórn um heildarendurskoðun á þjónustu við eldra fólk

Fundur verkefnastjórnar er haldinn í félags- og vinnumálaráðuneytinu, Síðumúla 24, 108 Reykjavík. Fulltrúi LEB er Helgi Pétursson formaður. Hlutverk verkefnastjórnar er að leiða vinnu við heildarendurskoðun á þjónustu við eldra fólk, að stuðla að samvinnu og samhæfingu á milli ráðuneyta, sveitarfélaga og annarra þjónustuaðila, forgangsraða og útfæra tímasett markmið í aðgerðaáætlun til fjögurra ára sem […]

Stöðufundur um Heilsueflingu fyrir eldra fólk – Bjartur lífsstíll

Fundurinn er haldinn til að fara yfir stöðuna á samstarfsverkefni LEB og ÍSI, Heilsuefling fyrir eldra fólk - Bjartur lífsstíll. Fundinn sitja f.h. LEB, Helgi Pétursson formaður og Viðar Eggertsson skrifstofustjóri, auk Andra Stefánssonar framkvæmdastjóra ÍSÍ. Fundurinn er haldinn í aðsetri LEB, Ármúla 6.