fbpx

354. Stjórnarfundur LEB

Fundurinn er haldinn sem fjarfundur á Zoom. Aðalstjórn LEB: Helgi Pétursson formaður Drífa Sigfúsdóttir Valgerður Sigurðardóttir Ingibjörg Sverrisdóttir Þorbjörn Guðmundsson Varastjórn LEB: Ásgerður Pálsdóttir Ingólfur Hrólfsson Ragnar Jónasson

Fundur um heilsueflingu eldra fólks

Formaður LEB, Helgi Pétursson, á fund með dr. Janusi Guðlaugssyni hjá Janusi heilsueflingu um heilsueflingu eldra fólks.

Formannafundur LEB

Formaður LEB boðar til formannafundar alla aðildarfélaga á Zoom Dagskrá: 1. Áhersluatriði eldra fólks í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga 2. Önnur mál.

Fundur með félags- og vinnumarkaðsráðherra

Guðmundur Ingi Guðbrandsson félags- og vinnumarkaðsráðherra hefur boðað fulltrúa LEB á sinn fund. Formaður LEB, Helgi Pétursson, mætir ásamt stjórnarmönnunum Ingibjörgu H. Sverrisdóttur og Þorbirni Guðmundssyni og skrifstofustjóra LEB, Viðari Eggertssyni.

Fundur um sveigjanleg starfslok

Starfshópur á vegum Reykjavíkurborgar kallar á fulltrúa ýmissa hagsmunahópa á sinn fund, hvern fyrir sig, til að heyra álit þeirra á sveigjanlegum starfslokum. Fyrir hönd LEB mæta Helgi Pétursson formaður og Viðar Eggertsson skrifstofustjóri.

Málþing ÖBÍ: Ungt fatlað fólk á hjúkrunarheimilum

ÖBÍ - Öryrkjabandalag Íslands heldur málþing á Grand hóteli, Sigtúni 28, 105 Reykjavík um ungt fatlað fólk á hjúkrunarheimilum. Meðal þátttakenda í pallborði er skrifstofustjóri LEB, Viðar Eggertsson. Yfirskrift málþingsins: UNGT FÓLK Á ENDASTÖÐ Í dag eru 144 fatlaðir einstaklingar undir 67 ára eru búsettir á hjúkrunarheimilum sem ætlaðir eru öldruðum einstaklingum. Þessir einstaklingar þurfa […]

Formaður LEB gestur á samverustund

Sérstakur gestur á samverustund eldri borgara í Landakirkju verður formaður LEB, Helgi Pétursson. Samverustundirnar eru reglulega annan hvern fimmtudag í hádeginu

355. Stjórnarfundur LEB

Fundurinn er haldinn sem fjarfundur. Aðalstjórn LEB: Helgi Pétursson formaður Drífa Sigfúsdóttir Valgerður Sigurðardóttir Ingibjörg Sverrisdóttir Þorbjörn Guðmundsson Varastjórn LEB: Ásgerður Pálsdóttir Ingólfur Hrólfsson Ragnar Jónasson

Fundur kjaranefndar LEB

Fundur kjaranefndar. Dagskrá Áframhaldandi umræða um áherslur í kjaramálum eldra fólks. Sigurður Guðmundsson skipulagsfræðingur. Hann er með langan starfsferil hjá fjármálaráðuneytinu og vann m.a. við að meta kostnað við að afnema skerðingar vegna atvinnutekna. Sigurður mun velta því fyrir sér hvort það séu raunhæfir möguleikar  á tilfærslum innan núverandi almannatryggingakerfis. Jón Ragnar Björnsson spáir í baráttuaðferðir eldra […]