fbpx

Fundað um skrifstofuhúsnæði LEB

Formaður LEB, Helgi Pétursson, og skrifstofustjóri LEB, Viðar Eggertsson, eiga fund með fulltrúum Regins fasteignafélags til að ræða enn frekari nýtingu LEB á skrifstofu sinni að Ármúla 6.

Óformlegt formannaspjall á þriðjudegi

Nýr formaður LEB, Helgi Pétursson, hefur bryddað upp á þeirri nýbreytni  að halda reglulega formannafundi með aðildarfélögum LEB með fjarfundarbúnaðinum ZOOM. Fyrsti fundurinn er þriðjudaginn 22. júní kl. 10.00

344. Stjórnarfundur LEB

Fundurinn bæði haldinn sem staðfundur í bækistöðvum LEB, Ármúla 6 og sem fjarfundur á Zoom. Aðalstjórn: Helgi Pétursson formaður Drífa Sigfúsdóttir Valgerður Sigurðardóttir Ingibjörg Sverrisdóttir Þorbjörn Guðmundsson Varastjórn: Ásgerður Pálsdóttir Ingólfur Hrólfsson Ragnar Jónasson

Formaður LEB fundar með félagsmálaráðherra

Félags- og barnamálaráðherra, Ásmundur Einar Daðason, hefur boðið formanni LEB, Helga Péturssyni, að koma á sinn fund og ræða ýmis hagsmunamál eldra fólk. Ásamt Helga sækja fundinn Þorbjörn Guðmundsson og Ingibjörg Sverrisdóttir stjórnarmenn LEB.

Starfsmenn heilbrigðisráðuneytis ræða við LEB

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að ráðast í heildarúttekt á þjónustuferlum, hugmyndafræði, innihaldi og gæðum heilbrigðisþjónustu fyrir einstaklinga með áfengis- og vímuefnasjúkdóma. Slík úttekt er nauðsynleg til að undirbyggja vinnu við mótun stefnu til framtíðar í þessum málaflokki þar sem settar verða fram heildstæðar tillögur um samþættingu og samvinnu fyrsta-, annars- og þriðja stigs heilbrigðisþjónustu. Samhliða úttektinni […]

Fundur um vef- og upplýsingamál LEB

Fundurinn er haldinn til að efla vef- og upplýsingamál LEB. Fundinn sækja Helgi Pétursson formaður LEB, Steinunn Valdimarsdóttir verkefnastjóri, Erna Indriðadóttir ritstjóri og Brynjólfur Ólason blaðamaður. Fundurinn fer fram í aðsetri LEB, Ármúla 6.

Fundur um rafræna afsláttarbók LEB

Fundur um hugsanlega rafræna afsláttarbok fyrir LEB. Fundinn sitja Viðar Eggertsson skrifstofustjóri LEB, Steinunn Valdimarsdóttir verkefnastjóri LEB og Franz Gunnarsson ráðgjafi. Fundurinn fer fram i aðsetri LEB, Ármúla 6.

Fundur um átaksverkefnið Heilsuefling eldra fólks

Fundurinn er haldinn í aðsetri LEB og verður þar farið yfir stöðu og framkvæmd á átaksverkefninu Heilsuefling eldra fólks. Fundinn sitja Helgi Pétursson formaður LEB, Valgerður Sigurðardóttir gjaldkeri LEB, Þorbjörn Guðmundsson meðstjórnandi LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir fyrrv. formaður LEB og Viðar Eggertsson skrifstofustjóri LEB. Sérstakur gestur fundarins er Janus Guðlaugsson frá Janusi Heilsueflingu.

Fundur ráðherranefndar um samræmingu mála um velferð vegna stöðunnar í COVID

Forsætisráðherra boðar til fjarfundar með ráðherranefnd um samræmingu mála til að ræða um viðbrögð og áherslur í baráttunni við COVID í bólusettu landi. Til fundarins er boðið fulltrúum frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Landssambandi eldri borgara, Geðhjálp, Þroskahjálp, Öryrkjabandalagi Íslands, Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu, Kvennaathvarfsins og Samtökum kvenna af erlendum uppruna. Fulltrúi LEB á fundinum verður […]

Fundur með stjórnendum Hrafnistu

Fundur með framkvæmdastjóra Hrafnistu og stjórnarmönnum Sjómannadagsráðs um húsnæðis- og þjónustumöguleika fyrir eldra fólk. Af hálfu LEB sækja fundinn Helgi Pétursson, Ingibjörg H. Sverrisdóttir og Þorbjörn Guðmundsson. Fundurinn er haldinn í húsnæði Hrafnistu að Sléttuvegi.