fbpx

Formaður LEB gestur á upplýsingafundi Almannavarna

Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður LEB verður gestur á upplýsingafundi Almannavarna miðvikudaginn 4. nóvember kl. 11.00 Þórunn Sveinbjörnsdóttir gestur á einum af upplýsingafundum Almannavarna

Fundur með borgarstjóra Reykjavíkur

Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, á fjarfund með borgarstjóra Reykjavikur um heilsueflingu, akstur á efri árum og fleiri mál er snerta eldra fólk.

Fundur LEB með fjárlaganefnd

Fjárlaganefnd Alþingis hefur boðið fulltrúum LEB á fjarfund vegna fjárlagafrumvarps ríkisstjórnarinnar. Fulltrúar LEB eru Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður LEB og eftirfarandi nefndarmenn í Kjaranefnd LEB: Haukur Halldórsson varaformaður LEB, Þorbjörn Guðmundsson […]

Stjórnarfundur Öldrunarráðs

Fundurinn er haldinn sem fjarfundur. Fjallað verður um væntanlegt málþing Öldrunarráðs. Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, situr fundinn.

Rýnihópur fyrir TR

Tryggingastofnun ríkisins boðar umræðuhóp til stefnumótunar á innra starfi TR. Fundurinn er haldinn sem fjarfundur. Fulltrúar LEB eru stjórnarmenn LEB: Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður, Valgerður Sigurðardóttir gjaldkeri, Dagbjört Höskuldsdóttir ritari og […]

Áskoranir og lausnir í kófinu fyrir almannaheill

ASÍ hefur boðað ýmis samtök og félög til fjarfundar föstudaginn 20. nóvember kl. 10 – 11:30, undir yfirskriftinni: Áskoranir og lausnir í kófinu fyrir almannaheill Hver samtök velja talsmann en er […]

Undirbúningur fyrir stefnumótun stjórnar LEB

Til undirbúnings fyrirhugaðs stefnumótunar stjórnar LEB koma saman Erna Indriðadóttir sem mun sjá um stefnumótunina, Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður, Valgerður Sigurðardóttir gjaldkeri og Viðar Eggertsson skrifstofustjóri LEB.

Fundur starfshóps um lífskjör og aðbúnað aldraðra

Starfshópurinn er skipaður af félagsmálaráðherra. Fundurinn er haldinn sem fjarfundur og að þessu sinni eru tekin fyrir mál er varða félags- og heilbrigðismál. Fulltrúar LEB í starfshópnum: Þórunn Sveinbjörnsdóttir, Haukur […]

Ráðgjafanefnd Landspítala

Fundur ráðgjafanefndar Landspítala verður fimmtudaginn 26. nóvember kl. 14.00 – 16.00. Meðal aðalfulltrúa í nefndinni er formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir. Ráðgjafarnefnd Ráðgjafarnefnd Landspítala starfar í samræmi við lög um heilbrigðisþjónustu. […]