Skrifstofa LEB er lokuð vegna sumarleyfa frá mánudeginum 17. júlí til og með mánudeginum 7. ágúst. Netbréfum er svarað eftir föngum þó skrifstofan sé í sumarfríi. Netfang: leb@leb.is Í neyðartilfellum er hægt að hafa samband við Viðar skrifstofustjóra í síma 898 8661 eða Helga formann í síma 696 2213. Gleðilegt sumar!
Nýr fulltrúi LEB í velverðarvaktinni, Drífa Sigfúsdóttir varaformaður LEB, mætir á sinn fyrsta fund 22. ágúst kl. 13.15. Hún leysir af Dagbjörtu Höskuldsdóttur sem hefur setið í nokkur ár. Dagbjörtu er þakkað vel unnin störf fyrir LEB. Velferðarvaktin er skipuð af félags- og vinnumarkaðsráðherra og fundar í ráðuneytinu. Upplýsingar um velferðarvaktina
Fundur með Breka Karlssyni formanni Neytendasamtakanna um ýmis sameiginleg hagsmunamál í aðsetri samtakanna að Guðrúnartúni 1. Fundinn sitja af hálfu LEB Helgi Pétursson formaður og Viðar Eggertsson skrifstofustjóri.
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun stendur fyrir Húsnæðisþingi miðvikudaginn 30. ágúst. Meðal þátttakenda er Helgi Pétuursson formaður LEB. Nánar um þingið og skráningu á það: HÉR
Fundurinn er haldinn sem fjarfundur. Kjaranefnd LEB: Þorbjörn Guðmundsson, formaður, Reykjavík Jón Ragnar Björnsson, Hella Jóna Ósk Guðjónsdóttir, Hafnarfjörður Ásgerður Pálsdóttir, Blönduós Sigurbjörg Gísladóttir, Reykjavík Varamaður: Ingibjörg H. Sverrisdóttir, Reykjavík