Ársfundurinn er haldinn á Íslandi að þessu sinni og sér LEB um skipulagningu hans. Formaður og varaformaður LEB, Helgi Pétursson og Drífa Sigfúsdóttir, eru fulltrúar LEB í stjórn NSK.
Stjórn LEB boðar til LANDSFUNDAR LEB 2023. Landsfundurinn verður haldinn í Hjálmakletti í Borgarnesi sem er í Menntaborgum, húsi Menntaskóla Borgarfjarðar, þriðjudaginn 9. maí nk. Allar upplýsingar um Landsfund LEB 2023 má lesa HÉR
Ef þú hefur fengið nóg af hagnaði bankanna og stórfyrirtækja, ef þú hefur fengið nóg af kerfisbundnu niðurrifi grunnstoða samfélagsins, ef þú hefur fengið nóg af aðgerðarleysi stjórnvalda, ef þú hefur fengið nóg af stýrivaxtahækkunum Seðlabankans, ef þú hefur fengið nóg af versnandi stöðu í heilbrigðiskerfinu, ef þú hefur fengið nóg af stöðunni á húsnæðismarkaði, […]
Verkefnastjórar Heilsueflingar 60+ - Bjartur lífsstíll standa fyrir ráðstefnu í Háskólanum í Reykjavík um heilsueflingu eldra fólks, kl. 12.00 - 16.00. Húsið opnar kl. 12.45. Að ráðstefnu lokinni verður frjáls umræða og kaffiveitingar kl. 16.00 - 17.00 Allir velkomnir. Allar upplýsingar um ráðstefnuna má lesa HÉR
Tryggingastofnun mun tilkynna niðurstöður uppgjörs þriðjudaginn kemur, 23 maí, og býður samstarfsnefnd LEB ´á kynningarfund um endurreikning og uppgjör fyrir árið 2022 á þriðjudaginn kemur 23. maí kl. 11.00.
Fundurinn haldinn í félagsmálaráðuneytinu, Síðumúla 24, 108 Reykjavík. Fundinn situr Helgi Pétursson formaður LEB. Samstarfsnefnd um málefni aldraðra starfar á grundvelli 4. gr. laga um málefni aldraðra nr. 125/1999, en samkvæmt greininni skipar ráðherra fimm manna samstarfsnefnd um málefni aldraðra eftir hverjar almennar alþingiskosningar. Samkvæmt 5. gr. laga um málefni aldraðra, nr. 125/1999, með þeirri […]