fbpx

Formannafundur LEB

Formannafundur sem er fjarfundur, verður haldinn þriðjudaginn 24. janúar kl. 10.00. Formenn allra aðildarfélaga LEB fá fundarboð og link til að tengjast fundinum. Þeim er heimilt að leyfa öðrum að sitja fundinn með sér og/eða áframsenda á annan fulltrúa síns félags ef það hentar. Almennt er þó bara einn fulltrúi formlega á fundinum. Fundarboð fá […]

Samstarfsnefnd um málefni aldraðra

Fundurinn haldinn í félagsmálaráðuneytinu, Síðumúla 24, 108 Reykjavík. Fundinn situr Helgi Pétursson formaður LEB. Samstarfsnefnd um málefni aldraðra starfar á grundvelli 4. gr. laga um málefni aldraðra nr. 125/1999, en samkvæmt greininni skipar ráðherra fimm manna samstarfsnefnd um málefni aldraðra eftir hverjar almennar alþingiskosningar. Samkvæmt 5. gr. laga um málefni aldraðra, nr. 125/1999, með þeirri […]

Verkefnastjórn um heildarendurskoðun á þjónustu við eldra fólk

Verkefnastjórnin mun funda með stjórnmálaflokkunum. Að þessu sinni með fulltrúum Flokks fólksins. Fundur verkefnastjórnar er haldinn í félags- og vinnumálaráðuneytinu, Síðumúla 24, 108 Reykjavík. Fulltrúi LEB er Helgi Pétursson formaður. Hlutverk verkefnastjórnar er að leiða vinnu við heildarendurskoðun á þjónustu við eldra fólk, að stuðla að samvinnu og samhæfingu á milli ráðuneyta, sveitarfélaga og annarra […]

Undirbúningsfundur vegna fundar norrænna leiklistarsambanda – NSK

Fundurinn er haldinn sem fjarfundur. Efni hans er undirbúningur vegna fundar NSK - Norræna landssambanda eldri borgara sem verður haldinn á Íslandi 3.-4. maí nk. Fundinn sitja af hálfu LEB: Helgi Pétursson formaður og Drífa Sigfúsdóttir varaformaður.

Fundur Sjálfbærnisráðs

Á fundi Sjálfbærnisráðs sem haldinn er í Kornhlöðunni í Bankastræti verður fjallað um 2 af 7 meginviðfangsefnum Sjálfbærnisráðs: Nr. 1 Efnahagur og hringrás / Nr. 2 Heilsa og velferð. Fulltrúi LEB í Sjálfbærniráði er Viðar Eggertsson skrifstofustjóri LEB.

366. Stjórnarfundur LEB

366. Stjórnarfundur LEB. Fundurinn er haldinn sem fjarfundur fimmtudaginn 2. febrúar kl. 10.00 Aðalstjórn LEB: Helgi Pétursson formaður, Drífa Sigfúsdóttir varaformaður, Sigrún C. Halldórsdóttir gjaldkeri, Ingibjörg Sverrisdóttir ritari, Þorbjörn Guðmundsson meðstjórnandi. Varastjórn LEB: Ásgerður Pálsdóttir Ragnar Jónasson Jónas Sigurðsson

Fundur Sjálfbærnisráðs

Á fundi Sjálfbærnisráðs sem haldinn er í Kornhlöðunni í Bankastræti verður fjallað um 2 af 7 meginviðfangsefnum Sjálfbærnisráðs: Nr. 3 Menntun og menning / Nr. 4 Vísindi og nýsköpun. Fulltrúi LEB í Sjálfbærniráði er Viðar Eggertsson skrifstofustjóri LEB.

Stöðufundur Heilsueflingar 60+

Fundur með verkefnatjórum Heilsueflingar 60+ Bjartur lífsstíll í bækistöðvum ÍSÍ. Fundinn sækja verkefnastjórarnir Ásgerður Guðmundsdóttir og Margrét Regína Grétarsdóttir ásamt formanni LEB og skrifstofustjóra og framkvæmdastjóra ÍSÍ.

Fundur Sjálfbærnisráðs

Á fundi Sjálfbærnisráðs sem haldinn er í Kornhlöðunni í Bankastræti verður fjallað um 3 af 7 meginviðfangsefnum Sjálfbærnisráðs: Nr. 5 Matvæli / Nr. 6 Land og vatn / 7 Orka og loftslag. Fulltrúi LEB í Sjálfbærniráði er Viðar Eggertsson skrifstofustjóri LEB.