fbpx

Fundur með landsráði um mönnun og menntun í heilbrigðisþjónustu

Fulltrúar LEB funda með landsráði um mönnun og menntun í heilbrigðisþjónustu um áherslur og sjónarmið hvað varðar verkaskiptingu milli heilbrigðisstétta. Fundurinn er haldinn að frumkvæði landsráðsins sem skipað er af heilbrigðisráðuneytinu

Upplýsingafundur um Afsláttarbók og -app

Á fundinum verður söfnun afsláttarkjara um allt land kynnt og hvernig á að standa að söfnunni. Einnig verður ný viðbót við Afsláttarbókina kynnt, sem er APP, sem er handhægt að nota sem afsláttarbók. Stjórnarmenn aðildarfélaga LEB, ásamt starfsmönnum þeirra, eru velkomnir á fundinn. Fundurinn verður haldinn sem fjarfudnur á Zoom.

Stefnumótunarfundur Öldrunarráðs

Ný stjórn Öldrunarráðs Íslands heldur fund um stefnumótun Öldrunarráðs. Fundurinn er haldinn Borgartúni 7. Fulltrúi LEB er Helgi Pétursson formaður.

Fræðslufundur um heimsmarkmið SÞ

Almannaheill og Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi standa fyrir fræðslufundinum sem verður á Zoom. LEB er aðili að Almannaheill og munu stjórnarmenn LEB sitja fundinn ásamt skrifstofustjóra. Vala Karen Viðarsdóttir, framkvæmdastjóri Félags Sameinuðu þjóðanna mun halda stutta kynningu um heimsmarkmiðin og ávinning félagasamtaka að taka þau upp og samþætta í daglega starfsemi sína. Félag Sameinuðu […]

Fundur velferðarnefndar LEB

Fundurinn er haldinn sem fjarfundur. Umræða um heilbrigðisstefnu stjórnvalda. Formaður LEB, Helgi Pétursson situr fund velferðarnefndar. Velferðarnefnd Dagbjört Höskuldsdóttir, formaður, Reykjavík Guðrún Ágústsdóttir, Reykjavík Katrín Fjeldsted, Reykjavík Ómar Kristinsson, Kópavogur

353. Stjórnarfundur LEB. Stefnumótunarfundur stjórnar.

Stjórn LEB heldur stefnumótunarfund undir handleiðslu Ernu Indriðadóttur að Kríunesi Aðalstjórn LEB: Helgi Pétursson formaður Drífa Sigfúsdóttir Valgerður Sigurðardóttir Ingibjörg Sverrisdóttir Þorbjörn Guðmundsson Varastjórn LEB: Ásgerður Pálsdóttir Ingólfur Hrólfsson Ragnar Jónasson

Formannafundur LEB

Formaður LEB, Helgi Pétursson, heldur fjarfund með formönnum allra aðildarfélaga LEB. Formönnum er heimilt að leyfa fleirum úr sínu félagi að vera viðstadda fundinn að eigin vild. Dagskrá: - Heilsuefling aldraðra - Kynning á verkefninu og verkefnastjórum - Afsláttarbókin 2022 - Stefnumótun LEB

Fundur velferðarnefndar LEB

Fundur haldinn í velferðarnefnd LEB, fundurinn er haldinn sem fjarfundur. Dagskrá: Umræður um frumvarpið sem við fengum sent. Staða hjá eldra fólki eftir og í faraldrinum. Undirbúningur að vinnu við ályktun fyrir landsfund. Önnur mál. Velferðarnefnd: Dagbjört Höskuldsdóttir, formaður, Reykjavík Guðrún Ágústsdóttir, Reykjavík Katrín Fjeldsted, Reykjavík Ómar Kristinsson, Kópavogur