fbpx

Skrifstofa LEB opnar aftur á nýju ári

Skrifstofa LEB að Ármúla 6, 108 Reykjavík opnar á nýju ári eftir hátíðirnar. Skrifstofan er opin alla virka daga kl. 09.00 - 12.00. Sími 567 7111, netfang: leb@leb.is og heimasíða: www.leb.is

Fundur um heilsueflingu aldraðra

Fundurinn er haldinn sem fjarfundur vegna sameiginlegs verkefnis LEB og ÍSÍ í heilsueflingu aldraðra um land allt. Fundinn sitja Viðar Eggertsson skrifstofustjóri LEB, Andri Stefánsson framkvæmdastjóri ÍSÍ og Ásgerður Guðmundsdóttir verkefnastjóri heilsueflingar.

Fundur um afsláttarbók LEB

Undirbúningsfundur vegna nýrrar afsláttarbókar fyrir árið 2022 og nýtt app. Fundinn sitja Viðar Eggertsson skrifstofustjóri LEB, Steinunn Valdimarsdóttir verkefnastjóri LEB og Dýrleif Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri FEB. Fundurinn fer fram í aðsetri FEB að Stangarhyl 4, 110 Reykjavík.

Fundur vegna málsóknar eldri borgara

Fundurinn er haldinn sem fjarfundur með lögfræðingum málsins, þeim Flóka Ásgeirssyni og Daníel Isebarn, þar sem verður farið yfir málið og væntanlega áfrýjun þess. Fundin sitja auk þeirra, málshefjendurnir Ingibjörg H. Sverrisdóttir, Sigríður J. Guðmundsdóttir, William Wessman, Helgi Pétursson formaður LEB, Þorbjörn Guðmundsson formaður kjaranefndar LEB, Finnur Birgisson formaður kjaranefndar FEB og Stefanía Magnúsdóttir fyrrv. […]

Stjórnarfundur Öldrunarráðs Íslands

Fyrsti fundur nýrrar stjórnar Öldrunarráðs Íslands. Stjórnin mun skipta með sér verkum á þessum fyrsta fundi sem er haldinn sem fjarfundur.

Kynning á félaga- og greiðslukerfinu ABLER fyrir aðildarfélög LEB

Fundurinn er haldinn sem fjarfundur á ZOOM og er fulltrúum allra aðildarfélaga LEB boðið á kynninguna þar sem kynnt verður þetta handhæga félaga- og greiðslukerfi sem LEB hefur tryggt öllum aðildarfélögum aðgang að. Kynninguna leiðir Steinunn Valdimarsdóttir verkefnastjóri tækniinnleiðingar hjá LEB

Fundur kjaranefndar LEB

Fundurinn er haldinn sem fjarfundur. Dagskrá: Stutt yfirferð á fjármálastefnu ríkisstjórnarinnar og umræða í framhaldi um leiðir til árangurs. Kjaranefnd LEB Þorbjörn Guðmundsson, formaður, Reykjavík Jón Ragnar Björnsson, Hella Jóna Ósk Guðjónsdóttir, Hafnarfjörður Ásgerður Pálsdóttir, Blönduós Sigurbjörg Gísladóttir, Reykjavík Varamaður Ingibjörg H. Sverrisdóttir, Reykjavík

Þingflokkur Flokks fólksins fundar með stjórn LEB

Að ósk þingflokks Flokks fólksins er haldinn fjarfundur. Markmiðið með fundinum er almennt – þau vilja taka stöðuna og ræða við stjórn LEB um þau málefni sem LEB liggur á hjarta.

352. stjórnarfundur LEB

Fundurinn er haldinn sem fjarfundur. Aðalstjórn LEB: Helgi Pétursson formaður Drífa Sigfúsdóttir Valgerður Sigurðardóttir Ingibjörg Sverrisdóttir Þorbjörn Guðmundsson Varastjórn LEB: Ásgerður Pálsdóttir Ingólfur Hrólfsson Ragnar Jónasson

Fundur með Öryrkjabandalagi Íslands

Fundur haldinn í aðsetri ÖBÍ að Sigtúni 32 með fulltrúum LEB þar sem farið verður yfir sameiginleg áherslumál LEB og ÖBÍ, sérstaklega í heilbrigðismálum. Fulltrúar ÖBÍ á fundinum verða Vilhjálmur Hjálmarsson formaður, Fríða Rún Þórðardóttir varaformaður málefnahóps ÖBÍ um heilbrigðismál og Stefán vilbergsson verkefnastjóri. Fulltrúar LEB eru Helgi Pétursson formaður og Viðar Eggertsson skrifstofustjóri.