fbpx

Undirbúningsfundur vegna sjónvarpsþáttar

Öldrunarráð Íslands og Landssamband eldri borgara standa fyrir ráðstefnunni sem sjónvarpað verður á RÚV-2. Fjölmörg erindi verða flutt. Dagskrá kynnt þegar nær dregur.

Starfslokanámskeið

Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, flytur erindi á starfslokanámskeiði Reikningsstofu bankanna

Fundur kjaranefndar LEB

Fundurinn er haldinn í bækistöðvum LEB að Ármúla 6. Á fundinum er áframhaldandi umræða um kjaramál eldri borgara og næstu skref. Kjaranefnd er skipuð: Aðalmenn Sigurður Björgvinsson, Hafnarfjörður Haukur Halldórsson, Akureyri Drífa Sigfúsdóttir, Reykjanesbær Jón Ragnar Björnsson, Hella Þorbjörn Guðmundsson, Reykjavík Sigurbjörg Gísladóttir, Reykjavík Varamenn Stefanía Magnúsdóttir, Garðabær Ingibjörg H. Sverrisdóttir, Reykjavík

Fundur með félagsmálaráðherra

Félagsmálaráðherra, Ásmundur Einar Daðason, hefur kallað formann og varaformann LEB, Þórunni Sveinbjörnsdóttur og Hauk Halldórsson, á sinn fund til að ræða málefni eldri borgara.

Samráðsfundur LEB og TR

Fundurinn verður haldinn í bækistöðvum TR, kl. 13.00 – 14.00. Fulltrúar LEB eru: Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður LEB,  og Ingólfur Hrólfsson, varstjórn LEB. Varamenn LEB: Dagbjört Höskuldsdóttir, ritari LEB og Valgerður Sigurðardóttir, gjaldkeri LEB.