fbpx

Félagsmalaráðherra fundar með formanni LEB

Ásmundur Einar Daðason félagsmálaráðherra heldur fjarfund með formanni LEB Þórunni Sveinbjörnsdóttur, miðvikudaginn 16. desember kl. 10.30 þar sem fjallað verður um málefni eldri borgara.

Skrifstofan í jólafríi 23. desember – 3. janúar

Ármúli 6, 108 Reykjavík Ármúli 6, Reykjavík, Iceland

Skrifstofan okkar verður í jólafríi (að mestu) frá miðvikudeginum 23. desember til og með sunnudeginum 3. janúar. Þó verðum við í netsambandi og hægt að senda okkur erindi á netfangið leb@leb.is og við svörum eftir bestu getu eins og endranær. Á nýju ári, mánudaginn 4. janúar, opnum við aftur og þá á nýjum stað. Við […]

Formaður LEB á fund með umhverfisráðherra

Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, á fund með umhverfisráðherra. Þar mun Þórunn afhenda Guðmundi Inga Guðbrandssyni umhverfisráðherra fjölnota tauburðarpoka sem LEB hefur látið framleiða. Athöfnin er formlegt upphaf af umhverfisátaki LEB, Umbúðalausir eldri borgarar, og jafnframt tilefni af því að 1. janúar gengu í gildi ný lög sem banna að dreifa eða selja plastburðarpoka.

Fundur starfshóps um lífskjör og aðbúnað aldraðra

Starfshópurinn er skipaður af félagsmálaráðherra. Fundurinn er haldinn sem fjarfundur að þessu sinni. Fulltrúar LEB í starfshópnum: Þórunn Sveinbjörnsdóttir, Haukur Halldórsson og Þorbjörn Guðmundsson. Félags- og barnamálaráðherra skipaði starfshóp í september 2019 um lífskjör og málefni aldraðra. Gert er ráð fyrir að starfshópurinn skili ráðherra lokatillögum í síðasta lagi vorið 2021 en starfshópnum er heimilt […]

Fundur Öldrunarráðs

Sérstakur fjarfundur Öldrunarráðs með starfsmönnum RÚV vegna fyrirhugaðs sjónvarpsþáttar um málefni eldri borgara. Formaður LEB, Þórunn sveinbjörnsdóttir situr fundinn.

Fundur ritnefndar LEB-blaðsins

Ritnefnd kemur saman til að undirbúa næsta tölublað LEB-blaðsins sem mun koma út í tengslum við árlegan Landsfund LEB í vor. Ritstjórn LEB blaðsins: Erna Indriðadóttir, ritstjóri Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður LEB Ingólfur Hrólfsson, Mosfellsbær Valgerður Sigurðardóttir, gjaldkeri LEB, Hafnarfjörður Stefanía Magnúsdóttir, Garðabær Viðar Eggertsson, skrifstofustjóri LEB Guðrún Ágústsdóttir, ráðgjafi LEB

Fundur starfshóps um aðbúnað og lífskjör aldraðra

Starfshópurinn er skipaður af félagsmálaráðherra. Fundurinn er haldinn sem fjarfundur. Fulltrúar LEB í starfshópnum: Þórunn Sveinbjörnsdóttir, Haukur Halldórsson og Þorbjörn Guðmundsson. Félags- og barnamálaráðherra skipaði starfshóp í september 2019 um lífskjör og málefni aldraðra. Gert er ráð fyrir að starfshópurinn skili ráðherra lokatillögum í síðasta lagi vorið 2021 en starfshópnum er heimilt að skila áfangaskýrslu […]

Fundur Öldrunarráðs

Sérstakur fjarfundur Öldrunarráðs vegna dagskrár fyrirhugaðs sjónvarpsþáttar um málefni eldri borgara. Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir situr fundinn.

Fundur Öldrunarráðs með RÚV

Sérstakur fjarfundur Öldrunarráðs með starfsmönnum RÚV vegna fyrirhugaðs sjónvarpsþáttar um málefni eldri borgara. Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir situr fundinn.