fbpx

Formaður LEB á Bylgjunni

Viðtal við formann LEB, Þórunni Sveinbjörnsdóttur í þættinum Í bítið á Bylgjunni kl. 7.30

Formaður LEB í viðtali í Sprengisandi á Bylgjunni

Meðal gesta í viðtalsþættinum Sprengisandi á Bylgunni í umsjón Kristjáns Kristjánssonar sunnudaginn 6. desember kl. 10.00 - 12.00 er formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, þar sem hún mn ræða kjaramál eldri borgara og önnur mál þeim tengd. Viðtalið við hana er ráðgert kl. 11.30

Fundur um alþjóðlegt samstarf

Fundur um alþjóðlegt þverfaglegt net um snjallt, heilbrigt aldursvænt umhverfi sem unnið er af velferðarsviði Reykjavíkurb orgar af  Íslands hálfu. Fjarfundinn sitja Roxana Cziker verkefnastýra og Þórhildur Guðrún Egilsdóttir forstöðukona öldrunarmála hjá Reykjavíkurborg auk formanns FEB-R Ingibjargar Sverrisdóttur og formanns LEB Þórunni Sveinbjörnsdóttir

Vinnustofa um geðheilbrigðismál

Heilbrigðisráðherra efnir til vinnustofu um samráð með fjarfundarbúnaði um framtíðarsýn í geðheilbrigðismálum til ársins 2030. Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, flytur erindi og tekur þátt í vinnustofu og pallborði

Samráðsfundur LEB og Tryggingastofnun ríkisins

Fundurinn verður haldinn í bækistöðvum TR, kl. 13.00 – 14.00. Fulltrúar LEB eru: Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður LEB,  og Ingólfur Hrólfsson, varstjórn LEB. Varamenn LEB: Dagbjört Höskuldsdóttir, ritari LEB og Valgerður Sigurðardóttir, gjaldkeri LEB.

Félagsmalaráðherra fundar með formanni LEB

Ásmundur Einar Daðason félagsmálaráðherra heldur fjarfund með formanni LEB Þórunni Sveinbjörnsdóttur, miðvikudaginn 16. desember kl. 10.30 þar sem fjallað verður um málefni eldri borgara.

Skrifstofan í jólafríi 23. desember – 3. janúar

Ármúli 6, 108 Reykjavík Ármúli 6, Reykjavík, Iceland

Skrifstofan okkar verður í jólafríi (að mestu) frá miðvikudeginum 23. desember til og með sunnudeginum 3. janúar. Þó verðum við í netsambandi og hægt að senda okkur erindi á netfangið leb@leb.is og við svörum eftir bestu getu eins og endranær. Á nýju ári, mánudaginn 4. janúar, opnum við aftur og þá á nýjum stað. Við […]

Formaður LEB á fund með umhverfisráðherra

Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, á fund með umhverfisráðherra. Þar mun Þórunn afhenda Guðmundi Inga Guðbrandssyni umhverfisráðherra fjölnota tauburðarpoka sem LEB hefur látið framleiða. Athöfnin er formlegt upphaf af umhverfisátaki LEB, Umbúðalausir eldri borgarar, og jafnframt tilefni af því að 1. janúar gengu í gildi ný lög sem banna að dreifa eða selja plastburðarpoka.

Fundur starfshóps um lífskjör og aðbúnað aldraðra

Starfshópurinn er skipaður af félagsmálaráðherra. Fundurinn er haldinn sem fjarfundur að þessu sinni. Fulltrúar LEB í starfshópnum: Þórunn Sveinbjörnsdóttir, Haukur Halldórsson og Þorbjörn Guðmundsson. Félags- og barnamálaráðherra skipaði starfshóp í september 2019 um lífskjör og málefni aldraðra. Gert er ráð fyrir að starfshópurinn skili ráðherra lokatillögum í síðasta lagi vorið 2021 en starfshópnum er heimilt […]