fbpx

Samráðsfundur vegna símavina

LEB hefur átt í samstarfi við bæði Velferðarsvið Reykjavíkur og Rauða krossinn vegna eflingar símavina sem sinna öldruðum til að rjúfa  einangrun og einmanaleika. Fulltrúar þessara aðila ásamt fulltrúa frá […]

Stjórnarfundur Öldrunarráðs

Fulltrúi LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður, mætir á fundinn sem haldinn er á Droplaugarstöðum.

Fundur um málefni eldri innflytjenda

Verkefnið er m.a. að kortleggja stöðu eldra fólks af erlendum uppruna sem hefur flust til landsins á seinni árum. Fundurinn verður fjarfundur að þessu sinni. Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, situr […]

Fundur um hátíð eldri borgara

Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, og skrifstofustjóri LEB, Viðar Eggertsson, funda með Inga Thor Jónssyni verkefnastjóra viðburða í Laugardalnum um mögulega hátíð eldri borgara þar næsta vor.

Fundur með nemendum félags- og tómstundafræði

Fundur með nemendum félags- og tómstundafræði Menntavísindasviðs Háskóla Íslands. Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður, segir frá starfsemi LEB og situr fyrir svörum nemenda á fjarfundi.

Fundur vegna Umbúðalausir eldri borgarar

LEB er með í undirbúningi verkefnið Umbúðalausir eldri borgarar sem styrkt er af umhverfisráðuneytinu. Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, og skrifstofustjóri LEB, Viðar Eggertsson, funda með Kolbrúnu Halldórsdóttur leikstjóra vegna verkefnisins.

Aðalfundur Öldrunarráðs Íslands

Fundurinn verður fjarfundur og verður notast við fjarfundarbúnað Webex. Dagskrá: 1. Hefðbundin aðalfundarstörf samkv. lögum ráðsins 2. Erindi 3. Afhending viðurkenningar Öldrunarráðs 4. Önnur mál Athugið að allir eru velkomnir […]

Fundur með Samgöngustofu

Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, fundar með Hildi Guðjónsdóttur hjá Samgöngustofu ýmsa fleti á akstri á efri árum á fjarfundi.