fbpx

Samráðsfundur LEB og Tryggingastofnunar ríkisins

Fundurinn verður haldinn í bækistöðvum TR, kl. 11.00 – 12.00. Fulltrúar LEB eru: Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður LEB, Valgerður Sigurðardóttir, gjaldkeri LEB og Ingólfur Hrólfsson, varstjórn LEB. Varamenn LEB: Dagbjört Höskuldsdóttir, ritari LEB og Ingólfur Hrólfsson, Mosfellsbær

Staða eldri innflytjenda

Staða eldri innflytjenda er nú í skoðun hjá LEB, með stuðningi frá félagsmálaráðuneytinu. Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, heldur fund til að kanna stöðuna með Barböru Jean Kristvinsson og Guðrúnu Ágústsdóttur í bækistöðvum LEB.

Fundur um málefni eldri nýbúa

Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, á fund í félagsmálaráðuneytinu um málefni eldri nýbúa. Vegna nýrra laga sem munu taka gildi 1. nóvember. Í þeim kveður á stuðning við eldra fólk með skerta búsetu á Íslandi og hefur ekki notið ellilífeyris. Brýnt er að hafa upp á þessu fólki svo hægt sé að kynna þeim réttindi sín.

Fundur Öldrunarráðs

Fulltrúi LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður, mætir á fundinn sem haldinn er á Droplaugarstöðum.

Formaður LEB gestur Mannlega þáttarins á Rás 1

Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður LEB og Guðrún Ágústsdóttir ráðgjafi hjá LEB  verða gestir Mannlega þáttarins kl. 11.03 á Rás 1, þriðjudaginn 15. september. Tilefnið er málþing LEB í samvinnu við Farsæla öldrun - Þekkingarmiðstöð. Málþingið ber heitið Veistu, ef þú vin átt og fjallar um einmanaleika og félagslega einangrun eldra fólks og hvað sé til ráða. […]

Fundur í félagsmálaráðuneytinu

Fundur vegna undirbúningsvinnu á nýrri skýrslu Greining á högum og líðan alraðra á Íslandi sem væntanlega lítur dagsins ljós snemma árs 2021. formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, sækir fundinn.

Formaður LEB gestur í fréttaskýringaþættinum 21 á Hringbraut

Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður LEB og Guðrún Ágústsdóttir ráðgjafi hjá LEB  verða gestir Lindu Blöndal í fréttaskýringaþættinum 21 á Hringbraut, kl. 21.00 þriðjudaginn 15. september. Tilefnið er málþing LEB í samvinnu við Farsæla öldrun – Þekkingarmiðstöð. Málþingið ber heitið Veistu, ef þú vin átt og fjallar um einmanaleika og félagslega einangrun eldra fólks og hvað sé […]

Umræður um hjálpartæki

ÖBÍ og LEB eiga fund í heilbrigðismálaráðuneytinu um stöðu skýrslu hjálpartækjamála og aðgerðaráætlun vegna hennar. Þórunn Sveinbjörnsdóttir sækir fundinn f. h. LEB

Starfshópur um lífskjör og aðbúnað aldraðra

Nefndin er á forræði félagsmálaráðherra. Að þessu sinni er starfað í starfshópum um afmörkuð mál: Starfshópur um félagslega þjónustu fundar kl. 13.00 - 14.00. Þar sitja m.a. Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður LEB og Haukur Halldórsson varaformaður LEB. Starfshópur um heilbrigðismál fundar kl. 14.00 - 15.00. Þar situr m.a. Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður LEB.

VEISTU, EF ÞÚ VIN ÁTT – Málþing um einmanaleika og félagslega einangrun eldra fólks

LEB ásamt Farsælli öldrun - þekkingarmiðstöð vinnur að undirbúningi málþings um einmanaleika og félagslega einangrun eldra fólks og hvað sé til ráða, Veistu, ef þú vin átt. Málþingið mun fara fram á Hótel Hilton Nordica fimmtudaginn 17. september kl. 13.00 - 17.00. Nánari upplýsingar HÉR Ókeypis aðgangur, en nauðsynlegt er að skrá sig. Málþinginu verður […]