fbpx

Starfshópur um lífskjör og aðbúnað aldraðra

Fundur hjá starfshóp um lífskjör og aðbúnað aldraðra. Starfshópurinn er skipaður af félagsmálaráðherra. Fundur hjá undirhópi um félagsþjónustu  Fundurinn er haldnirnn sem fjarfundir að þessu sinni til að mæta kröfum um sóttvarnir. Fulltrúar LEB í starfshópnum: Þórunn Sveinbjörnsdóttir, Haukur Halldórsson og Þorbjörn Guðmundsson. Félags- og barnamálaráðherra skipaði starfshóp í september 2019 um lífskjör og málefni aldraðra. […]

Samráðsfundur stjórnvalda vegna Covid 19

Samráðsfundur í boði heilbrigðis-, dómsmála- og forsætisráðherra. Nánar um fundinn:  Heilbrigðisráðherra í samvinnu við forsætis- og dómsmálaráðuneytið efnir til samráðsfundar í formi vinnustofu 20. ágúst með lykilaðilum í samfélaginu um áframhaldandi aðgerðir vegna Covid-19 til lengri tíma litið. Efnt er til samráðsins í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis. Streymt verður beint frá fundinum sem markar upphaf […]

333. stjórnarfundur LEB

Fyrsti fundur nýrrar stjórnar LEB. Á þessum fyrsta fundi mun stjórnin m.a. skipta með sér verkum. Stjórnarfundurinn er haldinn í aðsetri LEB að Sigtúni 42. Eftir að fundargerð hefur verið rituð og samþykkt á næsta stjórnarfundi á eftir verður hún birt á vef LEB, eins og venjan er. Stjórn LEB: Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður, Haukur Halldórsson, […]

Starfshópur um lífskjör og aðbúnað aldraðra

Fundur hjá starfshóp um lífskjör og aðbúnað aldraðra. Starfshópurinn er skipaður af félagsmálaráðherra. Fundur hjá undirhópi um heilbrigðisþjónustu  Fundurinn er haldnirnn sem fjarfundir að þessu sinni til að mæta kröfum um sóttvarnir. Fulltrúar LEB í starfshópnum: Þórunn Sveinbjörnsdóttir, Haukur Halldórsson og Þorbjörn Guðmundsson. Félags- og barnamálaráðherra skipaði starfshóp í september 2019 um lífskjör og málefni aldraðra. […]

Fundur með fulltrúum island.is & heilsuvera.is

Fundur með fulltrúum island.is & heilsuvera.is. Markmiðið er að undirbúa náið samstarf við starfsmenn þeirra til að samræma handhægar og víðtækar upplýsingar er varða eldri borgara. Fyrir hönd LEB sitja fundinn Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður og Viðar Eggertsson skrifstofustjóri.

Samráðsfundur LEB og Tryggingastofnunar ríkisins

Fundurinn verður haldinn í bækistöðvum TR, kl. 11.00 – 12.00. Fulltrúar LEB eru: Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður LEB, Valgerður Sigurðardóttir, gjaldkeri LEB og Ingólfur Hrólfsson, varstjórn LEB. Varamenn LEB: Dagbjört Höskuldsdóttir, ritari LEB og Ingólfur Hrólfsson, Mosfellsbær

Staða eldri innflytjenda

Staða eldri innflytjenda er nú í skoðun hjá LEB, með stuðningi frá félagsmálaráðuneytinu. Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, heldur fund til að kanna stöðuna með Barböru Jean Kristvinsson og Guðrúnu Ágústsdóttur í bækistöðvum LEB.

Fundur um málefni eldri nýbúa

Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, á fund í félagsmálaráðuneytinu um málefni eldri nýbúa. Vegna nýrra laga sem munu taka gildi 1. nóvember. Í þeim kveður á stuðning við eldra fólk með skerta búsetu á Íslandi og hefur ekki notið ellilífeyris. Brýnt er að hafa upp á þessu fólki svo hægt sé að kynna þeim réttindi sín.

Fundur Öldrunarráðs

Fulltrúi LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður, mætir á fundinn sem haldinn er á Droplaugarstöðum.