fbpx

Starfshópur um lífskjör og aðbúnað aldraðra

Starfshópurinn er skipaður af félagsmálaráðherra. Fjarfundur verður hjá starfshópnum að þessu sinni. Fulltrúar LEB á fundinum: Þórunn Sveinbjörnsdóttir, Haukur Halldórsson og Þorbjörn Guðmundsson. Félags- og barnamálaráðherra skipaði starfshóp í september 2019 um lífskjör og málefni aldraðra. Gert er ráð fyrir að starfshópurinn skili ráðherra lokatillögum í síðasta lagi vorið 2021 en starfshópnum er heimilt að […]

Vígsla jafnvægis- og styrktaræfingatækis FEB á Selfossi

Jafnvægis- og styrktaræfingatæki verður formlega tekið í notkun á Selfossi.Tækinu hefur nú verið komið fyrir á lóð Grænumarkar 5 við hlið félagsmiðstöðvar FEB á Selfossi. Sveitarfélagið Árborg sá um uppsetningu tækisins og var því verki lokið á haustdögum 2019. Þar sem veturinn var erfiður á margan hátt er fyrst núna hægt að taka tækið formlega […]

Fundur með mastersnema um málefni eldri innflytjenda

Karen Magnúsdóttir mastersnemi í félagsráðgjöf til starfsréttinda á fund með formanni LEB, Þórunni Sveinbjörnsdóttur. Karen er að leggja drög að mastersverkefninu, en það snýr að málefnum eldri innflytjenda á Íslandi. Hún hyggst fjalla um stöðu þeirra hérlendis, réttindi og þjónustuþörf svo eitthvað sé nefnt.

Fundur með formanni BSRB

Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, á fund með formanni BSRB, Sonju Ýr Þorbergsdóttur, um kjaragliðnun sem hefur orðið á milli eftirlaunafólks og þeirra sem eru lægst launaðir á vinnumarkaði, eftirlaunafólki í hag, og hægt sé að gera í stöðunni. Fundurinn fer framí húsakynnum BSRB, Grettisgötu 89.

Samstarfssamningur við MS

MS - Mjólkursamsalan mun gerast hollvinur LEB og verður skrifað undir samninginn í húsakynnum MS að Bitruhási 1.

331. stjórnarfundur LEB

Stjórnarfundurinn er haldinn í aðsetri LEB að Sigtúni 42. Eftir að fundargerð hefur verið rituð og samþykkt á næsta stjórnarfundi á eftir verður hún birt á vef LEB, eins og venjan er. Stjórn LEB: Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður, Haukur Halldórsson varaformaður, Valgerður Sigurðardóttir gjaldkeri, Dagbjört Höskuldsdóttir ritari og Ellert B. Schram meðstjórnandi. Varastjórn: Drífa Sigfúsdóttir, Ingólfur […]

Samráðsfundur LEB og Tryggingastofnunar

Fundurinn verður haldinn í bækistöðvum TR, kl. 11.00 – 12.00. Fulltrúar LEB eru: Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður LEB, Valgerður Sigurðardóttir, gjaldkeri LEB og Ingólfur Hrólfsson, varstjórn LEB. Varamenn LEB: Dagbjört Höskuldsdóttir, ritari LEB og Hrafn Magnússon og Ingólfur Hrólfsson, Mosfellsbær

Fundur Velferðarnefndar LEB

Fundurinn er haldinn í bækistöðvum LEB að Sigtúni 42. Nefndina skipa: Dagbjört Höskuldsdóttir, formaður Guðrún Ágústsdóttir Katrín Fjeldsted Ómar Kristinsson Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður LEB, mætir einnig á fundinn