fbpx

Fundur með Velferðarsviði Reykjavíkurborgar

Fjarfundur Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, Félags eldri borgara í Reykjavík og Landssambands edri borgara um hvað sé brýnast í málefnum eldri borgara núna. Fulltrúi LEB er formaðurinn Þórunn Sveinbjörnsdóttir.

Fundur um heilsueflandi samfélag fyrir eldri borgara

Fundurinn haldinn hjá Embætti landlæknis að Katrínartúni 2 hjá starfsmanni verkefnisins, Gígju Gunnarsdóttur, ásamt formanni LEB, Þórunni Sveinbjörnsdóttur og skrifstofustjóra LEB, Viðari Eggertssyni.

Ritnefndarfundur LEB blaðsins 2020

Ritnefnd árlegs tímarits Landssambands eldri borgara heldur fund á skrifstofu félagsins að Sigtúni 42. Ábendingar um efni er hægt að senda á netfangið leb@leb.is Í ritnefnd sitja: Erna Indriðadóttir, ritstjóri, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður LEB, Ingólfur Hrólfsson, Mosfellsbær, Valgerður Sigurðardóttir, gjaldkeri LEB, Hafnarfjörður og Stefanía Magnúsdóttir, Garðabær. Auk þeirra sitja fundinn Guðrún Ágústsdóttir ráðgjafi LEB og Viðar Eggertsson skrifstofustjóri LEB.

Samráðshópur félagsmálaráðherra vegna sértækra aðgerða

Fundur til að ræða útfærslu á nýtingu fjármagns samkv. fjáraukalögum til að efla félagsleg úrræði og tryggja stuðning við viðkvæma hópa m.a. til að vinna gegn félagslegri einangrun aldraðra, efla félagsmiðstöðvar fyrir eldri borgara og öryrkja. Fulltrúi LEB í starfshópnum er Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður. Fundurinn haldinn í Lundinum, Skógarhlíð 6 (1.hæð)

Aðgerðarhópur um Spjöllum saman

Fundurinn er haldinn  með Velferðarsviði Reykjavíkurborgar sem fjarfundur. Fundarmenn: Berglind Magnúsdóttir, Bryndís Hreinsdóttir og Þórhildur Egilsdóttir frá Reykjavíkurborg, einnig Dýrleif Guðjónsdóttir frá FEB í Reykjavík og Þórunn sveinbjörnsdóttir formaður LEB. Rætt verður um árangur af verkefninu og stöðu þess.

Fundur með ASÍ

Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, á fund með Drífu Snædal forseta ASÍ um kjör eldri borgara. Fundurinn verður haldinn í aðsetri ASÍ, Guðrúnartúni 1.

Stjórnarfundur Öldrunarráðs

Fulltrúi LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður, mætir á fundinn sem haldinn er á Droplaugarstöðum.

Fundur Kjaranefndar LEB & FEB-R

Fundur kjaranefndar LEB & FEB í Reykjavík. Haldinn í bækistöðvum LEB, Sigtúni 42. Nefndarmenn eru: Sigurður Jónsson, Suðurnesjabær, formaður nefndarinnar, Haukur Halldórsson, varaformaður LEB, Akureyri,  Stefanía Magnúsdóttir, Garðabær, Sigurbjörg Gísladóttir, Reykjavík og Ólafur Örn Ingólfsson, Reykjavík. Auk þeirra situr fundinn Þórunn sveinbjörnsdóttir formaður LEB.

Starfshópur um lífskjör og aðbúnað aldraðra

Starfshópurinn er skipaður af félagsmálaráðherra. Fjarfundur verður hjá starfshópnum að þessu sinni. Fulltrúar LEB á fundinum: Þórunn Sveinbjörnsdóttir, Haukur Halldórsson og Þorbjörn Guðmundsson. Félags- og barnamálaráðherra skipaði starfshóp í september 2019 um lífskjör og málefni aldraðra. Gert er ráð fyrir að starfshópurinn skili ráðherra lokatillögum í síðasta lagi vorið 2021 en starfshópnum er heimilt að […]