fbpx

Fundur Laganefndar LEB

Laganefnd LEB kemur saman til fundar til að fara yfir lög landssambandsins og gerir tillögu um breytingar ef þarf. Fundurinn verður haldinn á skrifstofu LEB, Sigtúni 42 Reykjavík. Laganefnd skipa: Guðmundur Guðmundsson formaður Hafnarfirði, Finnur Birgisson Reykjavík og Drífa Sigfúsdóttir Reykjanesbæ.

Fundur Öldrunarráðs

Fulltrúi LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður, mætir á fundinn sem haldinn er á Droplaugarstöðum.

Fundur formanns með forsætisráðherra

Forsætisráðherra, Katrín Jakobsdóttir, hefur boðað formann LEB, Þórunni Sveinbjörnsdóttur, á sinn fund til að ræða málefni eldra fólks.

Fundur Velferðarnefndar Alþingis

Velferðarnefnd boðar ýmsa fulltrúa til sín vegna breytinga á frmvarpi um almannatryggingar. Á fund nefndarinnar mættu Þórir Ólafsson og Agla K. Smith frá Tryggingastofnun, Henný Hinz frá Alþýðusambandi Íslands, Þórey S. Þórðardóttir og Þóra Jónsdóttir frá Landssamtökum lífeyrissjóða og Viðar Eggertsson frá Landssambandi eldri borgara. Fóru þau yfir málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

Fundur Kjaranefndar LEB & FEB-R

Fundur kjaranefndar LEB & FEB í Reykjavík. Haldinn í bækistöðvum LEB, Sigtúni 42. Nefndarmenn eru: Sigurður Jónsson, Suðurnesjabær, formaður nefndarinnar, Haukur Halldórsson, varaformaður LEB, Akureyri,  Stefanía Magnúsdóttir, Garðabær, Sigurbjörg Gísladóttir, Reykjavík og Ólafur Örn Ingólfsson, Reykjavík

Fundur Velferðarnefndar LEB

Fundurinn er haldinn í bækistöðvum LEB að Sigtúni 42. Nefndina skipa: Dagbjört Höskuldsdóttir, formaður Guðrún Ágústsdóttir Katrín Fjeldsted Ómar Kristinsson Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður LEB, mætir einnig á fundinn

328. stjórnarfundur LEB

Stjórnarfundurinn er haldinn á skrifstofu LEB, Sigtúni 42, 105 Reykjavík. Eftir að fundargerð hefur verið rituð og samþykkt verður hún birt á vef LEB, eins og venjan er. Stjórn LEB: Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður, Haukur Halldórsson varaformaður, Valgerður Sigurðardóttir gjaldkeri, Dagbjört Höskuldsdóttir ritari og Ellert B. Schram meðstjórnandi. Varastjórn: Drífa Sigfúsdóttir, Ingólfur Hrólfsson og Ólafur Örn […]