fbpx

Fundur Laganefndar LEB

Laganefnd LEB kemur saman til fundar til að fara yfir lög landssambandsins og gerir tillögu um breytingar ef þarf. Fundurinn verður haldinn á skrifstofu LEB, Sigtúni 42 Reykjavík. Laganefnd skipa: Guðmundur Guðmundsson formaður Hafnarfirði, Finnur Birgisson Reykjavík og Drífa Sigfúsdóttir Reykjanesbæ.

Samráðsfundur LEB og Tryggingastofnunar ríkisins

Fundurinn er haldinn í húsakynnum TR að Hlíðarsmára 11, Kópavogi, kl. 11.00 – 12.00. Fulltrúar LEB eru: Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður LEB; Valgerður Sigurðardóttir, gjaldkeri LEB, Hafnarfjörður; Hrafn Magnússon, Reykjavík og Ingólfur Hrólfsson, Mosfellsbær

Starfshópur um lífskjör og aðbúnað aldraðra

Starfshópurinn er skipaður af félagsmálaráðherra. Fundur hjá starfshópnum að Jöfri, Skógarhlíð 6 (1. hæð), Reykjavík. Fulltrúar LEB á fundinum: Þórunn Sveinbjörnsdóttir, Haukur Halldórsson og Þorbjörn Guðmundsson. Dagskráin er eftirfarandi: Velferðartækni - Hvað hefur verið innleitt, hvar og hvernig – hvað vantar upp á frekari innleiðingu góðrar tækni. Þór G Þórarinsson sérfræðingur í félagsmálaráðuneytinu kemur á […]

Fundur Laganefndar LEB

Laganefnd LEB kemur saman til fundar til að fara yfir lög landssambandsins og gerir tillögu um breytingar ef þarf. Fundurinn verður haldinn á skrifstofu LEB, Sigtúni 42 Reykjavík. Laganefnd skipa: Guðmundur Guðmundsson formaður Hafnarfirði, Finnur Birgisson Reykjavík og Drífa Sigfúsdóttir Reykjanesbæ.

Fundur Öldrunarráðs

Fulltrúi LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður, mætir á fundinn sem haldinn er á Droplaugarstöðum.

Fundur formanns með forsætisráðherra

Forsætisráðherra, Katrín Jakobsdóttir, hefur boðað formann LEB, Þórunni Sveinbjörnsdóttur, á sinn fund til að ræða málefni eldra fólks.

Fundur Velferðarnefndar Alþingis

Velferðarnefnd boðar ýmsa fulltrúa til sín vegna breytinga á frmvarpi um almannatryggingar. Á fund nefndarinnar mættu Þórir Ólafsson og Agla K. Smith frá Tryggingastofnun, Henný Hinz frá Alþýðusambandi Íslands, Þórey S. Þórðardóttir og Þóra Jónsdóttir frá Landssamtökum lífeyrissjóða og Viðar Eggertsson frá Landssambandi eldri borgara. Fóru þau yfir málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.