- This event has passed.
Kynning á nýrri skýrslu um hagi og líðan eldri borgara
7 apr 2021 @ 13:00 - 14:00
Félagsmálaráðuneytið, velferðarsvið Reykjavíkurborgar og Landssamband eldri borgara fengu Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands til að gera fyrir sig könnun á högum og líðan aldraðra á Íslandi 2020. Rafræn kynning á niðurstöðum könnunarinnar verður haldin 7. apríl nk. kl. 13. Helgi Guðmundsson verkefnastjóri hjá Félagsvísindastofnun mun kynna niðurstöðurnar.
Vegna Covid-19 faraldursins verður fundurinn haldinn á Teams. Ekki þarf að vera með Teams uppsett á tölvu til að geta horft á fundinn. Smelltu hér til að tengjast fundinum. Ekki er þörf á skráningu.