fbpx

Föstudaginn 5. janúar var haldinn opinn fundur um ójöfnuð á Stór-Reykjavíkursvæðinu þar sem farið var yfir niðurstöður tímamótarannsóknar um félagslegt landslag sem unnin var í samstarfi við Reykjavíkurborg.

Á fundinum voru tækifæri og áskoranir á Stór-Reykjavíkursvæðinu rædd með áherslu á tekjur og eignir. Einnig horft til mikilvægra lýðfræðilegra breytinga sem hafa átt sér stað á undanförnum árum og áratugum og geta haft áhrif á ójöfnuð, þ.e. öldrun samfélagsins, fjölgun innflytjenda, breytingu á fjölskylduformum og hækkandi menntunarstig.

Fundurinn fór fram í Tjarnarsal Ráðhússins.

Dagskrá

  • 9:00–9:15  Ávarp borgarstjóra, Dagur B. Eggertsson
  • 9:15–9:45  Félagslegt landslag í Reykjavík – niðurstöður rannsóknar, Kolbeinn H. Stefánsson, dósent á Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands
  • 9:45–9:55  Lagskipting og búseta, Guðmundur Ævar Oddsson, prófessor á Félagsvísindasviði Háskólans á Akureyri
  • 9:55–10:05 Ójöfnuður í heilsu í Reykjavík, Sigrún Ólafsdóttir, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands
  • 10:05–​​​​​​​10:15  Líðan Íslendinga eftir aldri, kyni og fjárhagsstöðu, Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðstjóri lýðheilsu hjá Embætti landlæknis
  • 10:15  Pallborð og samantekt

– Dagur B.Eggertsson – borgarstjóri

– Kolbeinn H. Stefánsson –  dósent á Félagsvísindasviði HÍ

-Sigþrúður Erla Arnardóttir – framkvæmdastjóri Vesturmiðstöðvar Reykjavíkur

-Óskar Dýrmundur Ólafsson – framkvæmdastjóri Suðurmiðstöðvar Reykjavíkur

-Gunnar Axel Axelsson – bæjarstjóri Vogum

-Fjóla Steindóra Kristinsdóttir – bæjarstjóri Árborg

Ójöfnuður á Stór-Reykjavíkursvæðinu – hver er staðan? | Reykjavik