fbpx
TR býður upp á námskeið 21. september nk. þar sem farið verður yfir allt sem snýr að umsóknum um ellilífeyri, greiðslufyrirkomulag og fleiru. Námskeiðið fer fram í Hlíðasmára 11, klukkan 16.00 -19.00 og nauðsynlegt er að skrá sig á námskeiðið.

Ef það hentar betur að fylgjast með í streymi bjóðum við upp á samskonar námskeið í streymi miðvikudaginn 27. september kl. 16.00 – 19.00 og er einnig nauðsynlegt að skrá sig á það námskeið.

📌Björn Berg Gunnarsson, fjármálaráðgjafi er gestafyrirlesari á námskeiðinu og fjallar um lífeyrissjóðina, ólíkar tegundir séreignarsparnaðar, skattamál, erfðamál, öryggi maka, undirbúning starfsloka o.fl.

📌Fyrir hönd TR kynnir Unnur Kristín Sigurgeirsdóttir, verkefnastjóri ellilífeyris, umsóknarferlið og umgjörð ellilífeyrisgreiðslna hjá TR.
Námskeiðinu er fyrst og fremst ætlað að vera góður vegvísir fyrir þau sem eru að huga að starfslokum. Því þetta þarf ekki að vera flókið.

Við hvetjum öll sem telja sig þurfa upplýsingar um ellilífeyriskerfið til að mæta. Það er takmarkað húsrými hjá okkur og því biðjum við þau sem ætla að mæta að skrá sig. Sjá nánar hér: https://www.tr.is/…/allt-um-ellilifeyri-thetta-tharf…