fbpx

Rannsóknir sýna að eldra fólk er líklegra til að verða fyrir ofbeldi en yngra fólk. Breytingar á fjölskyldumynstri í nútímasamfélagi geta orsakað tilfinningalegar og fjárhagslegar þrengingar fyrir eldra fólk. Staðan getur orðið enn viðkvæmari þegar fólk óttast að frekari einsemd bíði þeirra ef það kvartar yfir yfirgangi eða hreinu ofbeldi af hálfu ættingja eða umönnunaraðila.

Ofbeldi getur verið alls konar.

  • Andlegt ofbeldi er þegar einhver hótar þér, gerir lítið úr þér eða lætur þér líða illa.
  • Líkamlegt ofbeldi það þegar einhver meiðir þig, til dæmis klípur, kýlir, heldur þér, sparkar, lemur þig eða misnotar lyfin þín. Áverkar, skurðir, óútskýrð meiðsl, brunasár og lélegt ástand húðar geta verið merki um líkamlegt ofbeldi.
  • Kynferðislegt ofbeldi er það þegar einhver káfar á þér eða fær þig til að gera eitthvað kynferðislegt sem þú vilt ekki gera eða getur ekki samþykkt það vegna skerðingar.
  • Fjárhagslegt ofbeldi er þegar einhver svíkur af þér peninga, stelur eða misnotar peningana þína eða skapar þrýsting vegna ráðstöfunar á peningum þínum. Það er líka fjárhagslegt ofbeldi ef einhver sér um fjármálin þín og útvegar ekki nauðsynjar eða lætur þig undirrita skjöl sem þú ert ekki með skilning á.
  • Stafrænt ofbeldi er þegar einhver notar tæki eða tækni til að fylgjast með þér, ógna þér, áreita þig eða niðurlægja þig.
  • Vanræksla er þegar líkamlegri umönnun eða lyfjagjöf er ekki sinnt sem skyldi. Til dæmis þegar aldraður einstaklingur er sýnilega vannærður, þjáist af vökvaskorti, er illa klæddur eða fær ekki umönnun vegna veikinda eða meiðsla.

Þú getur haft samband við 112 ef þér finnst að einhver hafi brotið á rétti þínum eða beitt þig ofbeldi.

Þú getur talað við 112 gegnum netspjall ef þig grunar að þú sért að verða fyrir ofbeldi.

Lögreglan bætir þjónustu við eldra fólk sem verður fyrir ofbeldi

Undanfarin ár hefur orðið mikil breyting á því hvernig lögreglan nálgast ofbeldismál. Áður fyrr fengu gerendur meiri athygli en með átaki og fræðslu innan lögreglunnar hefur athyglinni verið beint meira að þolendum. Nýleg skýrsla á vegum greiningardeildar Ríkislögreglustjóra dregur upp skýra mynd af stöðu ofbeldis í garð eldra fólks, ekki síst í ljósi áhrifa Covid-19 á íslenskt samfélag.

Ýmis verkefni eru í gangi hjá yfirvöldum til að berjast gegn ofbeldi gegn eldra fólki. Markmiðið er að vernda betur viðkvæman hóp eldra fólks fyrir ofbeldi og að gera þeim auðveldara að fá hjálp.

 

 

Ofbeldi gegn eldra fólki er alvarlegt mál

Eldra fólk hefur tekið þátt í vitundarvakningu um ofbeldi gegn eldra fólki. Þar var sjónum beint að mismunandi tegundum ofbeldis, þá sérstaklega á að vanræksla og misnotkun fjármuna er líka ofbeldi. Viðhorf eldra fólks til ofbeldis er líka frábrugðið viðhorfi þeirra yngri.

 

 

Fjárhagslegt ofbeldi gegn eldra fólki er til dæmis þjófnaður, svik, misnotkun fjármuna eða þrýstingur vegna ráðstöfunar fjármuna.

 

Vanræksla og skortur á virðingu fyrir reisn og sjálfsákvörðunarrétti eldra fólks flokkast líka sem ofbeldi.

 

Þekkir þú birtingarmyndir ofbeldis?

Skoða fleiri dæmi

Ólafur

Ólafur er nægjusamur maður sem er nýorðinn 80 ára og býr enn á eigin heimili. Eitt barnabarna hans, Hrafnhildur, hjálpar honum oft við hluti sem eru honum erfiðir, eins og að fara út í búð og borga reikninga. Ólafur lét Hrafnhildi fá aðgang að netbankanum sínum í þessum tilgangi.

Nokkrum mánuðum seinna þegar Ólafur ætlaði að kaupa sér nýjan sófa kemur í ljós að Hrafnhildur hafði millifært reglulega af reikningnum hans yfir á sig. Hann heldur fyrst að þetta sé misskilningur en þegar hann spyr Hrafnhildi segir hún að sér finnist hún eiga þetta skilið og ætli ekki að borga honum til baka.