fbpx

 

Kennslubæklingar fyrir spjadtölvur, bæði fyrir Ipad og þær sem eru með Android stýrikerfi. Einnig fallegir áletraðir, fjölnota taupokar með áletruninni: Afi og amma redda málunum.

 

 

Nú er hægt að festa kaup á kennslubæklingum fyrir spjaldtölvur frá LEB. Fyrir Ipad annars vegar og Android stýrikerfi hins vegar. Android er í nánast öllum tölvum sem ekki eru af Ipad gerð. Bæklingarnir eru í stærðinni A4, litprentaðir, með stóru letri og fjölmörgum skýringamyndum, alls 18 bls. hvor gerð. (Sjá nánari upplýsingar um bæklingana HÉR)

Þá hefur LEB einnig til sölu fallega, fjölnota taupoka með áprentuninni: Afi og amma redda málunum. Taupokarnir eru úr 100% bómull 140g/m2, svartir með hvítri áletrun og eru ca 38 cm X 42 cm að stærð.

  • Bæklingarnir, Ipad og Android, bjóðast  á kostnaðarverði: 800 kr. fyrir eintakið. *
  • Fjölnota taupokarnir Afi og amma redda málunum kosta 1.500 kr. stk.

Póstburðargjöld innifalin í verðinu

Pantanir sendist á netfangið leb@leb.is
Ásamt þessum upplýsingum:
– Kennslubæklingur: Eintakafjöldi – og þá af hvorri gerð bæklings er óskað eftir
– Fjölnota taupoki: Eintakafjöldi
– Nafn viðtakanda, símanúmer, fullt heimilisfang með póstnúmeri

Ef greiðandi er annar en viðtakandi þá þarf að taka fram:
– Nafn hans og símanúmer

Við stofnum ekki kröfu í netbanka, en mælumst til að einstaklingar sem kaupa af okkur bæklinga og taupoka gegnum netið millifæri á reikning okkar:
– Kennitala: 6009894059
– Bankanr.: 0516-26-013888

Senda kvittun úr heimabanka á netfangið leb@leb.is

* Félagsmálaráðuneytið styrkti útgáfu kennslubæklinganna og eru þeir seldir á kostnaðarverði