fbpx

 

 

Forsíður beggja leiðbeiningabæklingana sem LEB hefur gefið út fyrir spjaldtölvur

 

LEB hefur fundið fyrir vaxandi þörf margra eldri borgara sem ekki hafa verið tölvuvæddir að hafa handhægt kennsluefni sem myndi nýtast þeim til að komast í rafrænt samband við umheiminn.

Enda er tölvulæsi orðið ómissandi þáttur í ýmsum samskiptum, hvort sem er manna í millum eða við opinberar stofnanir. Tölvur eru í mismunandi formum: Borðtölvur, spjaldtölvur, fartölvur… Jafnvel nýjustu símar eru orðnir fyrirtaks.

LEB réðst í að vinna að málinu og fékk Oddnýju Helgu Einarsdóttur til að taka saman kennsluefni, í sitt hvort ritið, fyrir Ipad annars vegar og Android stýrikerfi hins vegar. Android er í nánast öllum tölvum sem ekki eru af Ipad gerð.

Kennsluefnið er í bæklingum af A4 stærð og ríkulega skreyttir leiðbeininga myndum. Þar er farið skref fyrir skref um ýmsa grunnþætti spjaldtölvunnar, eins og t.d.:

  • Almenn virkni
  • Uppsetning
  • Skjárinn
  • Lykilorð
  • Stöðuborð
  • Lyklaborð
  • Að skipta um bakgrunn
  • Tengjast interneti
  • Myndavél
  • Vafri
  • Sækja forrit
  • Tölvupóstur
  • Facebook
  • Kort
  • Uppfærslur

Bæklingarnir, Ipad og Android, bjóðast á kostnaðarverði (lækkað verð frá 8. jan. 2021): 600 kr. fyrir eintakið.

Pantanir sendist á netfangið leb@leb.is
Ásamt þessum upplýsingum:
– Eintakafjöldi og þá af hvorri gerð bæklings
– Nafn viðtakanda, fullt heimilisfang og póstnúmer.

Ef greiðandi er annar en viðtakandi þá þarf að taka fram:
– Nafn hans og símanúmer.

Við póstsendum hvert á land sem er. Póstburðargjöld eru greidd af LEB.

Við stofnum ekki kröfu í netbanka, en mælumst til að einstaklingar sem kaupa af okkur bæklinga gegnum netið millifæri á reikning okkar:
– Kennitala: 6009894059
– Bankanr.: 0516-26-013888

Senda kvittun úr heimabanka á netfangið leb@leb.is

Félagsmálaráðuneytið styrkti útgáfuna.