fbpx

 

Formaður FEB – Félags eldri borgara í Reykjavík, Ingibjörg Sverrisdóttir,  var beðin um að halda erindi hjá Korpúlfum í Grafarvogi 25. okt. sl. sem og konan gerði. Ingibjörg situr jafnframt í stjórn LEB.

Þessar myndir voru teknar á staðnum meðan flutningur erindisins fór fram. Ingibjörg nýtti sér einblöðunginn með áherslupunktunum sem kynntir voru á málþingi LEB 2. október sl.

Eins og sjá má voru margir mættir og fékk Ingibjörg talsvert af spurningum eftir erindið.

Mjög margir hafa ekki áttað sig á þessum jaðarsköttum og hvað þeir eru að hafa út úr t.d. vöxtum af fjármunum sem dæmi.

Margir hafa ekki áttað sig heldur á þeim málum sem koma fram í 3. áhersluatriðið  á einblöðungnum þar sem vikið er að skerðingum m.a. vegna vaxta og verðbóta m.a. Eftir heimsóknina hefur fólk talsvert verið að ræða málin sín á milli því upplýsingarnar sem komu fram voru sláandi að margra mati og hafði fólk ekki áttað sig áður hver staðan væri.

 

Ingibjörg Sverrisdóttir formaður FEB og stjórnarmaður LEB heldur erindi fyrir Korpúlfa um kjaramál

 

IMG_8266