fbpx

 

Hvað er heilsuvera.is?

Er þetta eitthvað fyrir eldri borgara?

Vefurinn er fyrir almenning um heilsu, læknisviðtöl, lyfjasögu, fróðleik og margt fleira.

Þegar komið er inn á heilsuvera.is er að finna mínar síður og þar undir opnast á innskráningu með rafrænum skilríkjum. Skrá inn símanúmer og nota svo símann til að opna inn á næsta skref. Eftir það opnast inn á þína síðu með þínu nafni. Þar má sjá; heilsan mín, lyfseðlar, bólusetningar, samskipti, tímabókanir, líffæragjöf, sjúkraskrár og að lokum útskráningarhnappur. Á þessari síðu getur þú opnað á lyfseðla þína og þar óskað eftir endurnýjun á lyfjum. Skoðað bólusetningar, tekið á móti upplýsingum, pantað tíma hjá lækni, skoðað þína heilsugæslu og þinn heimilislækni, skoðað innlagnir á skjúkrahús og fleira.

Á forsíðunni er að finna mikinn fróðleik sem hentar eldra fólki s.s. um mataræði, hreyfingu, svefn og margt, margt fleira. Þessar leiðir geta auðveldað þér að þurfa ekki að bíða í síma eftir t.d. lyfjaendurnýjun. Einnig er gott að sjá stöðu lyfja og hvort einhver lyfseðill er að renna út.

Heilsuvera getur hjálpað núna þegar fólk er að forðast margmenni vegna flensunnar.

Farðu inn á Heilsuveruna HÉR

Gangi þér vel.