Valnefnd hefur nú farið yfir umsóknirnar og sex svæði verið valin til þátttöku. Þau eru:
- Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) og sveitarfélögin Fjarðabyggð og Múlaþing
- Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU) og annars vegar sveitarfélagið Árborg og hins vegar Hveragerðisbær
- Heilbrigðisstofnun Vesturlands (HVE) og annars vegar Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (tíu sveitarfélög) og hins vegar sveitarfélagið Húnaþing vestra
- Heilsugæsla höfuðborgarsvæðis (HH) og sveitarfélagið Mosfellsbær
- Heilbrigðisstofnun Vestfjarða (HVEST) og sveitarfélögin Bolungarvíkurkaupsstaður, Ísafjarðarbær, Súðavíkurhreppur, Tálknafjarðarhreppur og Vesturbyggð
- Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) og sveitarfélagið Dalvíkurbyggð
Í valnefndinni sátu þrír aðilar úr verkefnastjórn Gott að eldast, auk þess sem hvort ráðuneyti átti þar fulltrúa. Valnefndin horfði til auglýstra skilyrða fyrir þátttöku og matslista með stigagjöf sem lá fyrir og umsóknareyðublaðið byggði á.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra:
„Gott að eldast er mesta breyting á þjónustu við eldra fólk í langan tíma. Með vali á þessum sex svæðum hefst nú stærsta aðgerðin í aðgerðaáætlun verkefnisins eftir vandaðan undirbúning verkefnastjórnar. Ég er mjög ánægður með framvinduna í verkefninu og það verður sérlega spennandi að sjá árangurinn af þróunarverkefnunum og hvernig við getum yfirfært reynsluna á fleiri svæði í framtíðinni. Þetta verkefni er rétt að byrja og margt jákvætt fram undan.“
Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra:
„Þjónusta heilbrigðisstofnana og sveitarfélaga við eldra fólk er oft nátengd og þörf á þjónustu frá báðum aðilum. Því skiptir miklu máli að það séu engir múrar á milli þjónustuveitenda, heldur sameinist þeir um að veita notendum samfellda og einstaklingmiðaða þjónustu í samræmi við þarfir hvers og eins. Það er m.a. markmið áætlunarinnar Gott að eldast og ég er sannfærður um að þróunarverkefnin muni laða fram mikil tækifæri til að auka og bæta þjónustu á þessu sviði.“
Margvíslegar aðgerðir
Auk ofangreindra þróunarverkefna verður undir merkjum Gott að eldast ráðist í aðgerðir sem hverfast um heilbrigða öldrun með alhliða heilsueflingu, sveigjanlega þjónustu og stórbættan aðgang að ráðgjöf og upplýsingum um þjónustu fyrir eldra fólk.
Allar aðgerðir miða að því að tryggja eldra fólki þjónustu sem stuðlar að því að sem flest þeirra séu þátttakendur í samfélaginu – sem allra lengst og á þeirra eigin forsendum.
- Sjá nánar: Gott að eldast