fbpx

Ráðleggingar um sóttvarnir.

Einstaklingsbundnar sóttvarnir eru eftir sem áður mikilvægasta forvarnaraðgerðin. Það er undir hverjum og einum komið að sýna aðgát í umgengni við aðra, því við erum jú öll almannavarnir.

Gildandi takmörkun samkvæmt auglýsingu á samkomum vegna farsóttar nær frá og með 7. september 2020 (kl. 00.00) og gildir til 27. september 2020 (kl. 23.59).

Stjórnvöld endurmeta þörf á takmörkuninni eftir því sem efni standa til, þ.e. hvort unnt sé að aflétta henni fyrr eða hvort þörf sé á að framlengja gildistíma hennar.

Takmörkun á samkomum tekur til landsins alls.

Helstu ráðstafanir í gildi:

Fjöldatakmörkun. Takmörkun á fjölda einstaklinga sem kemur saman miðast við 200 fullorðna. Börn fædd 2005 eða síðar eru undanskilin.

Almenn nálægðartakmörkun. Sóttvarnarlæknir hvetur til að 1 metra nálægðartakmarkanir séu viðhafðar sem oftast í umgengi við aðra, sérstaklega óskylda eða ótengda aðila.

Á samkomum, öllum vinnustöðum og í allri annarri starfsemi skal tryggja að hægt sé að hafa a.m.k. 1 metra á milli einstaklinga sem ekki eru í nánum tengslum. Þar sem ekki er hægt að tryggja 1 metra fjarlægð milli einstaklinga þarf að nota andlitsgrímu sem hylur nef og munn. Þetta á t.d. við um almenningssamgöngur, þ.m.t. innanlandsflug og farþegaferjur, og starfsemi s.s. hárgreiðslustofur og nuddstofur. Mikilvægt er að kynna sér leiðbeiningar um notkun andlitsgríma.

Nálægðartakmörkun í skólum. Í framhalds- og háskólum gilda sömu nálægðartakmarkanir, að hafa 1 metra á milli einstaklinga án þess að andlitsgrímur séu notaðar.

Nálægðartakmörkun í íþróttum. Snertingar eru heimilar milli íþróttafólks á æfingum og í keppnum. Aftur á móti skal virða 1 metra nálægðartakmörkun í búningsklefum og á öðrum svæðum utan keppni og æfinga. Aðrir, meðal annars þjálfarar, starfsmenn og sjálfboðaliðar, skulu einnig virða 1 metra nálægðartakmörkun. Þær íþróttagreinar sem ekki heyra undir ÍSÍ (Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands) skulu setja sér leiðbeiningar eða fylgja sömu leiðbieningum og sambærilegar íþróttagreinar innan ÍSÍ.

Nálægðartakmörkun í sviðslist, tónlist og við kvikmyndatökur. Snertingar eru heimilar á æfingum í sviðslistum og tónlist á sama hátt og í íþróttum. Sama gildir um kvikmyndatöku.

Nálægðartakmörkun á líkamsræktarstöðvum. Takmarkanir vegna sérstakrar smithættu eru þær sömu á líkamsræktarstöðvum og á sund- og baðstöðvum. Gestir mega þar aldrei vera fleiri en nemur þrír fjórðu (75%) af leyfilegum hámarksfjölda gesta samkvæmt starfsleyfi.

Verslanir, opinberar byggingar og þjónustufyrirtæki sem eru opin almenningi þurfa að:

tryggja aðgang að handsótthreinsi fyrir almenning og starfsmenn við innganga og í grennd við yfirborð sem margir snerta s.s. snertiskjái og afgreiðslukassa

sinna vel þrifum og sótthreinsun yfirborða sem margir snerta eins oft og unnt er

minna almenning og starfsmenn á einstaklingssóttvarnir með merkingum og skiltum

Sundlaugar og veitingastaðir þurfa að tryggja að gestir geti haft 1 metra bil á milli sín í öllum rýmum með fjöldatakmörkun í samræmi við stærð hvers rýmis.

Starfsemi sem í eðli sínu felur í sér að gestir noti sameiginlegan búnað s.s. íþróttastarf, líkamsræktarstöðvar, spilakassar og spilasalir geri hlé á starfsemi eða sótthreinsi slíkan búnað milli notenda.

Söfn, skemmtistaðir og aðrir opinberir staðir geri hlé á starfsemi sé ekki hægt að tryggja að farið sé eftir fjöldatakmörkun eða að bil milli ótengdra aðila geti ekki fylgt nálægðartakmörkunum.

Opnunartími skemmti- og vínveitingastaða er til kl. 23:00.

Heimilt er að sekta vegna brota á sóttvarnareglum

Sektarákvæði vegna brota sem tengjast 2ja metra reglunni og reglum um grímunotkun.

Sektarákvæði vegna brota sem tengjast samkomutakmörkunum, sóttkví og vegna einangrunar.

Aðgerðir á landamærum

https://www.covid.is/flokkar/ferdalog

Hvað fellur ekki undir samkomubann?

Samkomubannið nær ekki til alþjóðaflugvalla eða alþjóðahafna, flugvéla eða skipa. Hvatt er til öflugra sóttvarnaráðstafana og að rekstraraðilar grípi til ýtrustu ráðstafana til að minnka möguleika á smiti.

Hvenær lýkur samkomubanninu?

Þessar takmarkanir eru í stöðugu endurmati þannig að hægt sé að draga úr þeim eða þá lengja tímabilið sem þær gilda ef þörf þykir.

 

Eldri borgarar

Ef þú ert í hópi eldri borgara (67 ára og eldri) áttu í meiri hættu á að fá alvarleg einkenni. Því skaltu fylgja fyrirmælum sóttvarnarlæknis hverju sinni.

Gefnar hafa verið út leiðbeiningar til starfsmanna hjúkrunarheimila og dagdvala (07.08.2020).

Við hjálpumst öll að við að hægja á útbreiðslu veirunnar með því að:

Þvo okkur oft og vel um hendurnar með vatni og sápu í hið minnsta 20 sekúndur. Jafnframt er gott að nota handspritt.

Hósta og hnerra í olnbogann, ekki í hendurnar eða út í loftið.

Gæta þess að snerta andlitið sem minnst með höndunum, sérstaklega augun, munninn og nefið. Þannig berst veiran inn í líkamann.

Forðast faðmlög, kossa og knús, brosa frekar.

Nota sótthreinsandi klúta til að þurrka af snertiflötum sem margir koma við.

Sýna sérstaka aðgát í samskiptum við fólk í áhættuhópum ásamt því að huga að eigin áhættu.

Nota síma og aðra samskiptamiðla til að viðhalda tengslum, miðla upplýsingum og passa upp á þá sem minna bakland hafa.

Stunda einhverja hreyfingu. Hægt er að gera líkamsæfingar innanhúss eftir leiðsögn sjúkraþjálfara ef við á. Einnig er hægt að nálgast leiðsögn um æfingar í útvarpi, sjónvarpi eða á netinu.

Í sérstökum áhættuhópi er eldra fólk með eftirfarandi undirliggjandi sjúkdóma

  • háan blóðþrýsting/hjartasjúkdóma
  • sykursýki
  • langvinna lungnateppu
  • langvinna nýrnabilun
  • krabbamein
  • skerta starfsemi ónæmiskerfis

Ef þú ert með þessa áhættuþætti ertu ekki næmari fyrir smiti en aðrir, en ef þú smitast eru meiri líkur á því að verða alvarlega veik(ur). Því er ráðlagt að hafa bein samskipti við sem fæsta. Mikilvægt er að huga að andlegri líðan og forðast að einangra sig. Notum síma og aðra samskiptamiðla til að viðhalda tengslum.

Áhættuhópar

Sóttvarnalæknir hefur gefið út leiðbeiningar fyrir einstaklinga sem eru í aukinni hættu á alvarlegum veikindum ef þeir smitast af COVID-19.

Leiðbeiningarnar eru ætlaðar fyrir:

Aldraða (því eldri því meiri ástæða til að hafa leiðbeiningarnar í huga)

Einstaklinga með hjartasjúkdóma/háþrýsting, sykursýki, langvinna lungnateppu, langvinna nýrnabilun og krabbamein óháð aldri (þ.m.t. barnshafandi konur og börn sem þetta á við)