Föstudaginn 5. janúar kl. 9.00 verður haldinn opinn fundur um ójöfnuð á Stór-Reykjavíkursvæðinu þar sem farið verður yfir niðurstöður tímamótarannsóknar um félagslegt landslag sem unnin var í samstarfi við Reykjavíkurborg.
Á fundinum verða tækifæri og áskoranir á Stór-Reykjavíkursvæðinu rædd með áherslu á tekjur og eignir. Einnig verður horft til mikilvægra lýðfræðilegra breytinga sem hafa átt sér stað á undanförnum árum og áratugum og geta haft áhrif á ójöfnuð, þ.e. öldrun samfélagsins, fjölgun innflytjenda, breytingu á fjölskylduformum og hækkandi menntunarstig.
Fundurinn fer fram í Tjarnarsal Ráðhússins. Húsið opnar 8:30 og boðið verður upp á kaffi og léttar veitingar. Fundurinn hefst kl. 09.00 og mun standa til kl. 11.00.
Viðburðinum verður streymt.
Dagskrá
- 9:00–9:15 Ávarp borgarstjóra, Dagur B. Eggertsson
- 9:15–9:45 Félagslegt landslag í Reykjavík – niðurstöður rannsóknar, Kolbeinn H. Stefánsson, dósent á Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands
- 9:45–9:55 Lagskipting og búseta, Guðmundur Ævar Oddsson, prófessor á Félagsvísindasviði Háskólans á Akureyri
- 9:55–10:05 Ójöfnuður í heilsu í Reykjavík, Sigrún Ólafsdóttir, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands
- 10:05–10:15 Líðan Íslendinga eftir aldri, kyni og fjárhagsstöðu, Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðstjóri lýðheilsu hjá Embætti landlæknis
- 10:15 Pallborð og samantekt
– Dagur B.Eggertsson – borgarstjóri
– Kolbeinn H. Stefánsson – dósent á Félagsvísindasviði HÍ
-Sigþrúður Erla Arnardóttir – framkvæmdastjóri Vesturmiðstöðvar Reykjavíkur
-Óskar Dýrmundur Ólafsson – framkvæmdastjóri Suðurmiðstöðvar Reykjavíkur
-Gunnar Axel Axelsson – bæjarstjóri Vogum
-Fjóla Steindóra Kristinsdóttir – bæjarstjóri Árborg
Ójöfnuður á Stór-Reykjavíkursvæðinu – hver er staðan? | Reykjavik
Öll velkomin!