fbpx

 

Formaður Félags eldri borgara á Selfossi, Magnús J. Magnússon, hefur boðað til fundar föstudag 1. mars um stöðu eldri borgara í íslensku samfélagi.

Á fundinum munu hin ýmsu mál sem brenna sérstaklega á eldri borgurum eins og kjaramál, búsetuúrræði, hjúkrunarheimili og heilbrigðismál, verða rædd og reifuð.

Til fundarins hefur verið boðaðir allir formenn aðildarfélaga LEB á Suðurlandi. Einnig hafa ráðherrar og allir þingmenn kjördæmisins verið boðaðir og margir þeirra þekkst boðið.

Sérstakir gestir fundarins verða Helgi Pétursson formaður LEB og Þorbjörn Guðmundsson formaður kjaranefndar LEB.

Fundurinn er haldinn í félagsmiðstöð Félags eldri borgara á Selfossi að Grænumörk 5 og hefst hann kl. 14.30