fbpx

Ákveðið hefur verið að halda formannafund LEB laugardaginn 13. mars kl. 13.00.

Bryddað er upp á þeirri nýjung að freista þess að halda hann sem fjarfund í gegnum Zoom og verður spennandi að vita hvernig það muni heppnast. Stjórn LEB hefur sjálf haldið að undanförnu nokkra fjarfundi og hafa þeir heppnast æ betur eftir því sem fólk kemst betur upp á lagið að nýta tæknina.

Fjarfundarformið gefur öllum 55 aðildarfélögunum vítt og breitt um landið möguleika á að tengjast á auðveldan hátt og er þetta vafalaust framtíðin í öflugu starfi LEB.

Formönnunum 55 ásamt stjórn LEB hefur verið sent fundarboð ásamt leiðbeiningum hvernig er hægt að hlaða Zoom forritinu niður í ýmsum tegundum tölva og í síma.Síðan fá þeir send frekari fundargögn og síðast en ekki síst: hlekk til að tengjast fundinum á auðveldan hátt.

 

Dagskrá formannafundarins 13. mars 2021:

          Valgerður Sigurðardóttir fundarstjóri setur fund

  1. Skoðanakönnun: Eiga eldri borgarar að bjóða fram?
    Þóra Ásgeirsdóttir fulltrúi Maskínu sem gerði skoðanakönnuna kynnir niðurstöðurnar.
  2. Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, flytur ávarp
    – Landsfundur LEB 2021
    – Staða mála í starfshóp um lífkjör og aðbúnað aldraðra
    – Stærstu verkefni í vinnslu hjá LEB
  3. Eldri borgarar og Alþingiskosningarnar
    Fulltrúar aðgerðarhóps kynna stöðu mála, tillögu að kröfum eldri borgara og hugsanlegar aðgerðir
  4. Umræða fundargesta

 

Stjórn LEB hefur síðustu mánuði haldið nokkra fjarfundi