Greiðslur ellilífeyrisþega hækkuðu um 4,6% frá 1. janúar 2022 og örorkulífeyrisþega um 5,6%. Um áramót komu til framkvæmda laga- og reglugerðabreytingar sem hægt er að skoða nánar hér
Ellilífeyrir:
- Ellilífeyrir er að hámarki 278.271 kr. á mánuði.
- Heimilisuppbót er að hámarki 70.317 kr. á mánuði.
- Almennt frítekjumark skattskyldra tekna er 25.000 kr. á mánuði.
Örorkulífeyrir og endurhæfingarlífeyrir:
- Örorkulífeyrir er að hámarki 52.631 kr. á mánuði.
- Tekjutrygging er að hámarki 168.542 kr. á mánuði.
- Aldurstengd örorkuuppbót er að hámarki 52.631 kr. á mánuði (100%).
- Heimilisuppbót er að hámarki 56.969 kr. á mánuði.
- Lágmarks framfærslutrygging (vegna sérstakrar uppbótar til framfærslu) er:
-
- 351.920 kr. á mánuði hjá þeim sem fá greidda heimilisuppbót.
- 279.886 kr. hjá öðrum.
-
Almennt:
- Greiðslur eru reiknaðar út frá tekjuáætlun sem lífeyrisþegar bera ábyrgð á að leiðrétta ef þörf er á.
- Hægt er að skoða og breyta tekjuáætlun á Mínum síðum á tr.is.
- Endurreikningur vegna greiðslna ársins 2021 fer fram árið 2022 þegar staðfest skattframtal liggur fyrir.