fbpx

Fyrirlestur. Bergljót Soffía Kristjánsdóttir, prófessor í íslenskum bókmenntum við Háskóla Íslands: „berrössuð stelpa“ eða „síðbrjósta kellíng“. Um afstöðu skáldmæltra kvenna til elli og öldrunar.

14 nóv. kl. 12:00 13:00. Allir velkomnir. Ókeypis aðgangur.

Í fyrirlestrinum verður fyrst drepið á hvernig talað hefur verið um öldrun og elli fyrr og nú; vikið að lífseigum hugmyndum sem hafa verið uppi um ellina – og öldrun kvenna sérstaklega; minnst á hvenær rannsóknir á konum og elli hófust og hvernig þær hafa breytt sýn okkar á efnið en þá verður meðal annars vitnað í Simone de Beauvoir. Að auki verður sótt til nokkurra femínista á þessari öld til að varpa ljósi á stöðu mála nú. Í framhaldinu verða tekin dæmi úr ritum ýmissa íslenskra skáldkvenna sem gefa innsýn í hvernig ellin markar reynslu þeirra og kenndir – á ólíkum tímum og við ólíkar aðstæður.

Bergljót Soffía Kristjánsdóttir er prófessor í íslenskum bókmenntum eftir 1700. Hún hefur fengist við kennslu á ýmsum skólastigum, síðustu þrjátíu ár á háskólastigi, bæði hérlendis og í Kaupmannahöfn. Rannsóknir hennar eru á sviði miðaldabókmennta og seinni alda bókmennta en síðustu fimmtán ár hefur hún einkum nýtt hugræna bókmenntafræði á fornan og nýjan skáldskap.