fbpx

Íslandsbanki heldur opinn fund um það sem mikilvægast er að hafa í huga vegna fjármála við starfslok. Fundurinn verður fimmtudaginn 9. janúar, í Íslandsbanka, Hagasmára 3, Kópavogi, Norðurturn við Smáralind, kl. 17.00 – 18.00

Meðal þess sem rætt verður um er:

– Hvað breyttist um áramótin?
– Skerðingar og greiðslur Tryggingastofnunar
– Hvenær og hvernig er best að taka út lífeyri og séreign?
– Hvað þarf að hafa í huga varðandi skatta?
– Hver eru algengustu mistökin sem gerð eru við starfslok?

Erindi flytur Björn Berg Gunnarsson, deildarstjóri greiningar og fræðslu Íslandsbanka

Frítt er á fundinn, en áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að skrá sig.

Skráning: HÉR