Fundinn sitja fulltrúi ÍSÍ, Andri Stefánsson, ásamt Helga Pétursyni formanni og Viðari Eggertssyni skrifstofustjóra LEB. Fundurinn fer fram í aðsetri LEB að Ármúla 6.
Aðalfundur Öldrunarráðs Íslands verður haldinn sem fjarfundur á TEAMS. Fundinn sækir formaður LEB ásamt öðrum stjórnarmönnum. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf Viðurkenning Öldrunarráðs Íslands Rannsóknarstyrkur Önnur máHÉR er hægt að sjá aðildarfélög Öldrunarráðs Íslands
Reglulegur samráðsfundur TR með fulltrúum þjónustuþega. Af hálfu LEB sækja fundinn: Helgi Pétursson formaður LEB, Ingibjörg Sverrisdóttir, og Ingólfur Hrólfsson.
Fundinn sitja fulltrúi ÍSÍ, Andri Stefánsson, ásamt Helga Pétursyni formanni og Viðari Eggertssyni skrifstofustjóra LEB. Fundurinn fer fram í aðsetri LEB að Ármúla 6.
Kjaranefnd LEB ásamt nokkrum öðrum kjaranefndum aðildarfélaga LEB halda sameiginlegan fund vegna nýs fjárlagafrumvarps og hvernig væntanleg kjör eldra fólks birtist þar. Fundurinn er haldinn í sal FEB að stangarhyl 4, 110 Reykjavík, kl. 10.00 - 12.00 og jafnframt sem fjarfundur fyrir þá sem eiga ekki heimangengt.
LEB ásamt Rauða krossinum stendur fyrir átaki að efla Símavini um allt land með stuðningi félagsmálaráðuneytisins. Kynningarfundur haldinn fyrir aðildarfélög LEB á Zoom. Hafdís Rún Guðmundsdóttir, verkefnisstjóri Símavina, kynnir verkefnið og fer yfir mikilvæga punkta eins og hvernig á að beita virkri hlustun ásamt fleiru.
Fjarfundur með formönnum og öðrum stjórnarmönnum aðildarfélaga LEB með formanni LEB þar sem farið verður yfir stöðu mála sem varðar eldra fólk. Fundurinn verður í ZOOM og hefst kl. 10.00
Formaður LEB, Helgi Pétursson og verkefnastjóri LEB, Steinunn Valdimarsdóttir, eiga fund með Franz Gunnarssyni hjá 1819 vegna innleiðingu á appi fyrir LEB. Fundurinn fer fram í aðsetriLEB að Ármúla 6
Helgi Pétursson formaður LEB á fund með Guðmundi Inga Guðbrandssyni félagsmálaráðherra um ýmis hagsmunamál eldri borgara. Fundurinn fer fram í félagsmálaráðuneytinu, Skógarhlíð 6. Með formanni verð stjórnarmenn LEB, þau Ingibjörg H. Sverrisdóttir og Þorbjörn Guðmundsson, auk Viðars Eggertssonar skrifstofustjóra LEB.
Fulltrúar félagsmálaráðuneytisins, Birna Sigurðardóttir og Erna Kristín Blöndal, halda fund með formanni LEB, Helga Péturssyni, og fulltrúa Janus Heilsuefling, Janusi Guðlaugssyni, um átak í heilsueflingu aldrðra.
Skrifstofa LEB verður lokuð yfir hátíðirnar frá Þorláksmessu 23. desember til sunnudagsins 2. janúar. Svarað verður þó í síma 567 7111 virka daga kl. 09.00 - 12.000 og erindum sem berast með tölvupósti í netfangið leb@leb.is Opnum aftur mánudaginn 3. janúar kl. 09.00 Gleðilega hátíð!
Stjórn LEB og starfsfólk óskar öllum aðildarfélögum LEB, sem og öllum þeim sem við höfum átt samstarf við, gleðilegrar hátíðar! Þökkum öflugt og gott samstarf á árinu sem er að líða. Megi nýtt ár verða okkur öllum heillaríkt.
Skrifstofa LEB verður lokuð yfir hátíðirnar frá Þorláksmessu 23. desember til sunnudagsins 2. janúar. Svarað verður þó í síma 567 7111 virka daga kl. 09.00 – 12.000 og erindum sem berast með tölvupósti í netfangið leb@leb.is Opnum aftur mánudaginn 3. janúar kl. 09.00 Gleðilega hátíð!