fbpx

Formaður fer með Verkefnastjórn til Egilsstaða

Formaður LEB, Helgi Pétursson, fer með Verkefnisstjórn um heildarendurskoðun á þjónustu við eldra fólks til Egilsstaða þar sem nefndin á tal við heilbrigðisstarfsmenn og sveitarstjórn.

Fundur Norrænna landssambanda eldri borgara

Haustfundur Norrænna landssambanda eldri borgara verður að þessu sinni haldinn í boðu Svía. Fundurinn er haldinn í Stokkhólmi og stendur yfir í tvo daga, 26. og 27. október. Fulltrúi Íslands á fundinum er Drífa Sigfúsdóttir, varaformaður LEB.

Samstarfsnefnd um málefni aldraðra

Fundurinn haldinn í félagsmálaráðuneytinu, Síðumúla 24, 108 Reykjavík. Fundinn situr Helgi Pétursson formaður LEB. Gestur fundarins er Áshildur Linnet sérfræðingur í málefnum innflytjenda hjá FRN. Samstarfsnefnd um málefni aldraðra starfar á grundvelli 4. gr. laga um málefni aldraðra nr. 125/1999, en samkvæmt greininni skipar ráðherra fimm manna samstarfsnefnd um málefni aldraðra eftir hverjar almennar alþingiskosningar. […]

Formaður fer með Verkefnastjórn í Borgarnes

Formaður LEB, Helgi Pétursson, fer með Verkefnisstjórn um heildarendurskoðun á þjónustu við eldra fólk í Borgarnes þar sem nefndin kynnir sér aðstæður og á tal við heilbrigðisstarfsmenn og aðra sem málin varða.

Verkefnastjórn um heildarendurskoðun á þjónustu við eldra fólk

Fundur verkefnastjórnar er haldinn í félags- og vinnumálaráðuneytinu, Síðumúla 24, 108 Reykjavík. Fulltrúi LEB er Helgi Pétursson formaður. Hlutverk verkefnastjórnar er að leiða vinnu við heildarendurskoðun á þjónustu við eldra fólk, að stuðla að samvinnu og samhæfingu á milli ráðuneyta, sveitarfélaga og annarra þjónustuaðila, forgangsraða og útfæra tímasett markmið í aðgerðaáætlun til fjögurra ára sem […]

363. Stjórnarfundur LEB

363. Stjórnarfundur LEB er haldinn þriðjudaginn 8. október kl. 10.30. Aðalstjórn LEB: Helgi Pétursson formaður Drífa Sigfúsdóttir Sigrún C. Halldórsdóttir Ingibjörg Sverrisdóttir Þorbjörn Guðmundsson Varastjórn LEB: Ásgerður Pálsdóttir Ragnar Jónasson Jónas Sigurðsson

Sameiginlegur fundur kjaranefndar & stjórnar LEB

Fundurinn er haldinn föstudaginn 11. nóvember kl. 13.00. Fundurinn verður haldinn sem fjarfundur á Zoom. Dagskrá: Nefna það kjaraatriði sem okkur finnst mikilvægast 2. Dómur hæstaréttar í máli Gráa hersins 3. Önnur mál Staðan hjá ASÍ er mjög sérstæð og ekki um það að ræða að ASÍ fari fram fyrir félögin með beinum  hætti. Hins vegar er […]

Verkefnastjórn um heildarendurskoðun á þjónustu við eldra fólk

Fundur verkefnastjórnar er haldinn í félags- og vinnumálaráðuneytinu, Síðumúla 24, 108 Reykjavík. Fulltrúi LEB er Helgi Pétursson formaður. Hlutverk verkefnastjórnar er að leiða vinnu við heildarendurskoðun á þjónustu við eldra fólk, að stuðla að samvinnu og samhæfingu á milli ráðuneyta, sveitarfélaga og annarra þjónustuaðila, forgangsraða og útfæra tímasett markmið í aðgerðaáætlun til fjögurra ára sem […]

Formannafundur LEB

Formaður LEB, Helgi Pétursson, boðar til formannafundar aðildarfélaga LEB, fimmtudag 17. nóvember kl. 10.00. Dagskrá: 1. Niðurstaða í máli Gráa hersins í Hæstarétti – framhald? 2. Kjaramál 3. Fræðsluerindi? / Fleiri Zoom fundi? Formenn eru hvattir til að sækja fundinn fyrir sín félög eða staðgengill hans. Formönnum er heimilt að leyfa öðrum í stjórn eða […]

Fundur með fyrrum dómara hjá Mannréttindadómstól Evrópu

Davíð Þór Björgvinsson fyrrverandi dómari hjá Mannréttindadómstól Evrópu kemur á fund formanns LEB og formanns kjaranefndar LEB vegna dóms Hæstaréttar í máli Gráa hersins og fer yfir stöðu málsins vegna hugsanlegrar áfríunar til dómstólsins.