fbpx

Fundur um hátíð eldri borgara

Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, og skrifstofustjóri LEB, Viðar Eggertsson, funda með Inga Thor Jónssyni verkefnastjóra viðburða í Laugardalnum um mögulega hátíð eldri borgara þar næsta vor.

Fundur með nemendum félags- og tómstundafræði

Fundur með nemendum félags- og tómstundafræði Menntavísindasviðs Háskóla Íslands. Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður, segir frá starfsemi LEB og situr fyrir svörum nemenda á fjarfundi.

Fundur vegna Umbúðalausir eldri borgarar

LEB er með í undirbúningi verkefnið Umbúðalausir eldri borgarar sem styrkt er af umhverfisráðuneytinu. Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, og skrifstofustjóri LEB, Viðar Eggertsson, funda með Kolbrúnu Halldórsdóttur leikstjóra vegna verkefnisins.

Aðalfundur Öldrunarráðs Íslands

Fundurinn verður fjarfundur og verður notast við fjarfundarbúnað Webex. Dagskrá: 1. Hefðbundin aðalfundarstörf samkv. lögum ráðsins 2. Erindi 3. Afhending viðurkenningar Öldrunarráðs 4. Önnur mál Athugið að allir eru velkomnir á aðalfundinn. Tilkynna þarf þátttöku á netfangið oldrunarrad@oldrunarrad.is

Fundur með Samgöngustofu

Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, fundar með Hildi Guðjónsdóttur hjá Samgöngustofu ýmsa fleti á akstri á efri árum á fjarfundi.

Fundur hjá starfshópi um lífskjör og aðbúnað aldraðra

Starfshópurinn er skipaður af félagsmálaráðherra. Fundurinn er haldinn sem fjarfundur að þessu sinni til að mæta kröfum um sóttvarnir. Fulltrúar LEB í starfshópnum: Þórunn Sveinbjörnsdóttir, Haukur Halldórsson og Þorbjörn Guðmundsson. Félags- og barnamálaráðherra skipaði starfshóp í september 2019 um lífskjör og málefni aldraðra. Gert er ráð fyrir að starfshópurinn skili ráðherra lokatillögum í síðasta lagi […]

Formaður LEB í Mannlega þættinum á Rás 1

Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður LEB situr fyrir svörum sem „sérfræðingur vikunnar" í Mannlega þættinum á Rás 1 um ýmis málefni eldra fólks. Fastur liður á fimmtudögum í Mannlega þættinum á Rás 1 er „sérfræðingur vikunnar“. Fimmtudaginn 22. október verður sérfræðingurinn Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður LEB – Landssambands eldri borgara. Hlustendur geta beint spurningum til hennar með því […]

Ráðgjafanefnd Landspítala

Fundur ráðgjafanefndar Landspítala verður fimmtudaginn 22. október kl. 14.00 - 16.00. Meðal aðalfulltrúa í nefndinni er formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir. Ráðgjafarnefnd Ráðgjafarnefnd Landspítala starfar í samræmi við lög um heilbrigðisþjónustu. Í nefndinni eru níu aðalmenn og jafnmargir til vara. Nefndin skal vera forstjóra og framkvæmdastjórn „til ráðgjafar og álits um þjónustu, starfsemi og rekstur spítalans […]