Fundurinn er haldinn á vegum forsætisráðuneytisins sem hefur með höndum vinnu Sjálfbærniráðs og verður hann í Safnahúsinu við Hverfisgötu í Reykjavík. Aðalfulltrúi LEB í Sjálfbærniráði er Viðar Eggertsson og til vara Helgi Pétursson formaður LEB.
Félagsmálaráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, hefur boðað formann LEB og framkvæmdastjóra ÍSÍ á sinn fund í ráðuneytinu til að skrifa undir endurnýjaðan samning um Heilsueflingu eldra fólks, föstudaginn 2. desember kl. 13.00
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, og Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, boða til opins kynningarfundar mánudaginn 5. desember nk. kl. 11:00-13:00 á Hilton Reykjavik Nordica vegna heildarendurskoðunar á framtíð þjónustu við eldra fólk á Íslandi. Efni fundarins er kynning á drögum að aðgerðaáætlun til fjögurra ára sem lögð verður fram á Alþingi vorið 2023. Áætlunin […]
Fundur verkefnastjórnar er haldinn í félags- og vinnumálaráðuneytinu, Síðumúla 24, 108 Reykjavík. Fulltrúi LEB er Helgi Pétursson formaður. Hlutverk verkefnastjórnar er að leiða vinnu við heildarendurskoðun á þjónustu við eldra fólk, að stuðla að samvinnu og samhæfingu á milli ráðuneyta, sveitarfélaga og annarra þjónustuaðila, forgangsraða og útfæra tímasett markmið í aðgerðaáætlun til fjögurra ára sem […]
Fundur verkefnastjórnar er haldinn í félags- og vinnumálaráðuneytinu, Síðumúla 24, 108 Reykjavík. Fulltrúi LEB er Helgi Pétursson formaður. Hlutverk verkefnastjórnar er að leiða vinnu við heildarendurskoðun á þjónustu við eldra fólk, að stuðla að samvinnu og samhæfingu á milli ráðuneyta, sveitarfélaga og annarra þjónustuaðila, forgangsraða og útfæra tímasett markmið í aðgerðaáætlun til fjögurra ára sem […]
Fundurinn haldinn í félagsmálaráðuneytinu, Síðumúla 24, 108 Reykjavík. Fundinn situr Helgi Pétursson formaður LEB. Samstarfsnefnd um málefni aldraðra starfar á grundvelli 4. gr. laga um málefni aldraðra nr. 125/1999, en samkvæmt greininni skipar ráðherra fimm manna samstarfsnefnd um málefni aldraðra eftir hverjar almennar alþingiskosningar. Samkvæmt 5. gr. laga um málefni aldraðra, nr. 125/1999, með þeirri […]
Formaður LEB, Helgi Pétursson, og formaður kjaranefndar LEB, Þorbjörn Guðmundsson, ásamt fleiri fulltrúum LEB eiga fund með félags- og vinnumarkaðsráðherra, Guðmundi Inga Guðbrandssyni, um kjara- og lífeyrismál, í félagsmálaráðuneytinu, fimmtudaginn 8. desember kl. 11.30
Skrifstofa LEB verður að mestu lokað á milli jóla og nýárs. Netpósti verður þó svarað eftir föngum leb@leb.is eins minnum við á heimasíðu LEB www.leb.is þar eru ýmsar upplýsingar að finna sem geta komið að notum. Ef erindi er áríðandi er hægt að ná sambandi við skrifstofustjóra í síma 898 8661 og formann í síma […]
Stjórn LEB þakkar öllum félagsmönnum og formönnum aðildarfélaganna 55 um allt land samskipti á árinu sem er að líða og óskar félagsmönnum og fjölskyldum þeirra farsældar og friðar á komandi ári. Megi baráttumál okkar sem flest rata farællega í höfn!