fbpx

Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Morgunverðarfundur Velferðarvaktarinnar

9 okt 2023 @ 09:00 - 10:30

 

Fulltrúi LEB í Velferðarvaktinni er Drífa Sigfúsdóttir varaformaður LEB.

Velferðarvaktin stendur fyrir morgunverðarfundi á Hótel Reykjavík Natura mánudaginn 9. október kl. 9.00-10.30 um stöðu og aðstæður foreldra sem ekki deila lögheimili með barni. Kynntar verða helstu niðurstöður nýlegrar rannsóknar á stöðu og aðstæðum foreldra sem ekki deila lögheimili með barni.

Velferðarvaktin og félags- og vinnumarkaðsráðuneytið stóðu að rannsókninni en Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands sá um framkvæmd hennar. Þá verða flutt erindi og að lokum fara fram pallborðsumræður, meðal annars með þátttöku félags- og vinnumarkaðsráðherra og dómsmálaráðherra.

Óskað er eftir að þátttakendur skrái sig:

Dagskrá

9.00-9.20: Rannsókn á stöðu og aðstæðum foreldra sem deila ekki lögheimili með barni

Ari Klængur Jónsson, nýdoktor við Félagsvísindasvið Háskóla Íslands, kynnir helstu niðurstöður

9.20-9.40: Hefur regluverk þróast samhliða breyttu fjölskyldumynstri?

Guðný Björk Eydal, prófessor við Félagsráðgjafardeild HÍ, fjallar um megineinkenni íslenska kerfisins í sögulegu og alþjóðlegu samhengi

9.40-9.50: Sjónarmið Foreldrajafnréttis

Brjánn Jónsson, formaður, kynnir sjónarmið félagsins

9.50-10.30: Pallborðsumræður:

  • Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra
  • Guðrún Hafsteinsdóttir, dómsmálaráðherra
  • Brjánn Jónsson, formaður Foreldrajafnréttis
  • Gyða Hjartardóttir, umsjónar og ábyrgðaraðili SES (Samvinna eftir skilnað) á Íslandi
  • Margrét Steinarsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands

Fundarstjóri Siv Friðleifsdóttir, formaður Velferðarvaktar.

Húsið opnar kl. 8:30.

Details

Date:
9 okt 2023
Time:
09:00 - 10:30