- This event has passed.
Aðalfundur Almannaheilla
6 jún 2023 @ 15:30 - 17:30
Almannaheill, samtök þriðja geirans, boðar til aðalfundar samtakanna, þriðjudaginn 6. júní n.k. kl. 15.30 í húsi Krabbameinsfélagsins við Skógarhlíð 8 í Reykjavík.
Fundarstjóri verður Eva Þengilsdóttir.
Í félagslögum Almannaheilla segir:
Aðalfundur
- gr
Aðalfundur Almannaheilla fer með æðsta vald og ákvörðunarrétt í málefnum samtakanna. Skal
hann að jafnaði haldinn fyrir 15. júní ár hvert. Senda skal út fundarboð í tölvupósti til
aðildarfélaga með minnst fjögurra vikna fyrirvara. Í aðalfundarboði skal kynna dagskrá,
fundartíma og fundarstað. Önnur fundargögn. s.s. ársreikning, skal senda með tveggja vikna
fyrirvara. Aðalfundurinn telst lögmætur ef löglega er til hans boðað. - gr.
Aðildarfélögin eiga rétt á einum fulltrúa á aðalfundinn hvert. Aðildarfélög sem greiða félagsgjöld
samkvæmt efri þrepum í félagsgjaldaskrá Almannaheilla skulu eiga rétt á viðbótarfulltrúum,
einum fyrir hvert þrep (veltutengt). Rétt til setu á aðalfundi eiga þau aðildarsamtök sem eru
skuldlaus við félagið. - gr.
Á dagskrá aðalfundar skulu vera:
– Kosning fundarstjóra og fundarritara.
– Skýrsla stjórnar um nýliðið starfsár og starfið framundan.
– Skýrsla um fjárhag samtakanna.
– Umræður um skýrslur og afgreiðsla ársreiknings.
– Kosning stjórnar, skoðunarmanna .
– Ákvörðun um gjaldskyldu aðildarfélaga.
– Lagabreytingar og aðrar tillögur.
– Önnur mál.