fbpx

 

Aðalfundur Félags eldri borgara á Akureyri haldinn í Síðuskóla miðvikudaginn 20. mars 2024 samþykkir eftirfarandi ályktun.

Fundurinn átelur ríkisstjórn Íslands harðlega fyrir það, að í þeim 80 milljarða króna pakka, sem hún setti fram til  að liðka fyrir kjarasamningum næstu fjögur árin, er ekkert sérstaklega minnst á málefni eldri borgara þessa lands.

Það er öllum ljóst að stór hópur eldri borgara hefur mjög lágar tekjur og þarf sárlega að fá viðbót til að geta lifað eðlilegra lífi en hann gerir í dag.

Fundurinn telur að það ætti að vera forgangsverkefni stjórnvalda að sinna betur þeim þegnum sínum, sem hafa byggt upp það þjóðfélag, sem við búum við í dag.

Fundurinn skorar á alla eldri borgara þessa lands að standa þétt við bak  Landsambands eldri borgara í þeirri miklu baráttu sem fram undan er í að ná fram réttlæti eldri borgurum til handa.

Ennfremur skorar fundurinn á Landsamband eldri borgara  að berjast af fullri hörku fyrir því að á okkur verði hlustað og stjórnvöld komi til móts við okkar óskir um  að allir geti lifað sómasamlegu lífi af sínum lífeyri.