fbpx

Nýverið gaf Landssamband eldri borgara út leiðbeiningabæklinginn „Við andlát maka“ sem ætlaður er aðstandendum og þá aðallega eldra fólki. Landsambandið vill með þessu hjálpa fólki við erfiðar og tilfinningaríkar aðstæður til að létta þá ferla sem fara í gang við andlát maka.

Aðstandendur standa ráðalausir uppi eftir ástvinamissi og það kemur gjarnan á óvart hversu mikið umstang fylgir andláti. Hvert á að snúa sér og hvernig til að átta sig á réttindum og skyldum sem upp koma við andlát?  Guðrún Ágústsdóttir, sem hefur verið ráðgjafi hjá LEB, tók þetta mikilvæga verkefni að sér. Hún aflaði margvíslegra upplýsinga fyrir eftirlifandi maka um hvað beri að gera og hvernig beri að fara í gegnum skjöl og ýmsan frágang gagnvart fjölmörgum aðilum.

Hægt er nálgast rafræna útgáfu af bæklingnum hérna: Við andlát maka. En einnig her hægt að nálgast bæklinginn á skrifstofu Landssambands eldri borgara, Ármúla 6, Reykjavík. Skrifstofan er opin á virkum dögum frá kl. 09:00 – 12:00. Guðrún Ágústsdóttir skrifaði textann en Elsa S.Þorkelsdóttir lögfræðingur veitti lagalega ráðgjöf og Júlía Róbertsdóttir sá um grafíska hönnun.

Mannlegi þátturinn á Rás 1 tók viðtal við Guðrúnu um bæklinginn, mánudaginn 13. september, sem má heyra hér: Mannlegi þátturinn – Viðtal við Guðrúnu Ágústdóttur.