fbpx

 

Þuríður Friðjónsdóttir er stórglæsileg eldri leikkona

 

Landssamband eldri borgara hefur hleypt af stokkunum átaki sem ætlað er að vekja fólk til vitundar um mikilvægi umhverfisverndar. Framleiddar hafa verið stiklur til sýninga í sjónvarpi og á samfélagsmiðlum, þar sem áhersla er lögð á þrjá mikilvæga þætti umhverfisverndar.

Hvatt er til að við

– skiptum út einnota pokum fyrir taupoka.

– hendum aldrei lyfjum í ruslið og skilum lyfjaumbúðum í apótek.

– plokkum og stundum heilnæma hreyfingu, sem hentar öllum.

Framleiðsla stiklanna var í höndum stafrænu auglýsingastofunnar Sahara, handritið gerði Katla Sólnes, kvikmyndatökumaður var Ágúst Örn Ágústsson, verkefnisstjórn og leikstjórn annaðist Kolbrún Halldórsdóttir. Nokkrir eldri leikarar leika í stiklunum eins og Þuríður Friðjónsdóttir (75), Jón Hjartarson (79), Sólveig Hauksdóttir (77), Guðmundur Magnússon (74) og einnig yngra fólk eins og t.d.tónlistarmaðurinn Króli eru meðal leikara í stiklunum.

Stiklurnar eru aðgengilegar á heimasíðu Landssambands eldri borgara og samfélagsmiðlum, auk þess sem minnt verður á þær í sjónvarpi og prentmiðlum.

Landssamband eldri borgara naut stuðnings Umhverfisráðuneytisins við framleiðsluna, auk þess sem Pokasjóður, Frumtök – Samtök frumlyfjaframleiðenda á Íslandi, Apótekarinn og Kjöthöllinn veittu mikilvægan stuðning.

Hérna fyrir neðan má sjá stiklurnar eða auglýsingarnar sem nú eru farnar að birtast. þær sjást ef menn smella á heiti þeirra.

Taupoki

MUNUM EFTIR TAUPOKANUM

Það tekur plastpoka allt að 1000 ár að brotna niður.

Landssamband eldri borgara hvetur þig til að
skipta út einnota pokum fyrir taupoka.

Plokk

ALLIR ÚT AÐ PLOKKA

Munum að flokka og skila á endurvinnslustöðvar.

Landssamband eldri borgara hvetur stóra sem smáa
að stunda skemmtilega hreyfingu eins og að plokka.

Lyfjapakkningar

ENGIN LYF Í RUSLIÐ

Munum að skila notuðum lyfjaumbúðum til apóteks.

Landssamband eldri borgara hvetur þig til að
henda aldrei lyfjum í ruslið eða hella lyfjum í vaskinn.