fbpx
 

 

Ályktun frá Landsambandi eldri borgara
  • Stjórn LEB – Landssambands eldri borgara bendir á að í öllum þeim aðgerðum sem stjórnvöld hafa gert til að koma til móts við fyrirtæki og einstaklinga vegna þeirra áhrifa sem kórónuveiran hefur á þjóðfélagið er hvergi minnst á aðgerðir sem snerta hagsmuni eldri borgara landsins.
  • Margir eldri borgarar þurfa á víðtækri þjónustu að halda eins og að fara í mötuneyti, verslanir og apótek, margir í leigubíl. Nú þurfa eldri borgarar að fá sendingar heim sem felur í sér aukinn kostnað.
  • Stjórn LEB skorar á sveitarfélögin að taka upp gjaldfrjálsa heimsendingu til þeirra eldri borgara sem þurfa að fá sendingar heim til sín.
  • Stjórn LEB skorar á sveitarfélögin að lækka fasteignagjöld sem kemur öllum til góða.
  • Stjórn LEB telur í því ástandi sem nú ríkir í þjóðfélaginu gæti verið rétt að leggja fram fé til Tryggingastofnunar ríkisins til að sinna þeim verst settu.
  • Stjórn LEB skorar á ríkisvaldið að stíga nú það skref að hækka almenna frítekjumarkið í 50 þús.kr. á mánuði. Sú aðgerð mun auka ráðstöfunartekjur sambýlinga um 7.094 kr.á mánuði og hjá einbýlingum um 8.970 kr. á mánuði eftir skatt.
  • Stjórn LEB skorar á stjórnvöld að afgreiða frumvarp að lögum nr.666 sem nú eru til umsagnar.  Þau eru um félagslega aðstoð við fólk með skerta búsetu.

25.mars 2020
Stjórn LEB – Landssambands eldri borgara

 

Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður                                            Haukur Halldórsson varaformaður

Valgerður Sigurðardóttir gjaldkeri                                               Dagbjört Höskuldsdóttir ritari

Ellert B. Schram meðstjórnandi                                                  Drífa Sigfúsdóttir varamaður

Ingólfur Hrólfsson varamaður                                                     Ólafur Ingólfsson varamaður