fbpx

Endurreikningur tekjutengdra greiðslna ársins 2016

Tryggingastofnun hefur lokið endurreikningi á tekjutengdum greiðslum ársins 2016 hjá stærstum hluta lífeyrisþega. Einstaklingar geta skoðað niðurstöður eigin endurreiknings á Mínum síðum.

Til að tryggja að lífeyrisþegar fái réttar greiðslur, sem eru í samræmi við raunverulegar tekjur þeirra á árinu 2016, miðast endurreikningurinn við tekjuupplýsingar í staðfestum skattframtölum. Endurreikningurinn er svo borinn saman við það sem greitt hafði verið á árinu. Niðurstaðan leiðir síðan í ljós hvort lífeyrisþegi fékk rétt greitt, vangreitt eða greitt umfram rétt.

Samtals var endurreiknað fyrir 57 þúsund lífeyrisþega sem fengu greidda 86,5 milljarða króna í tekjutengdar greiðslur á síðasta ári. Þar af voru 36 þúsund ellilífeyrisþegar og 21 þúsund örorku- og endurhæfingarlífeyrisþegar.

Niðurstaða endurreikningsins leiðir í ljós að 43% þeirra sem fengu tekjutengdar greiðslur á síðasta ári eiga inneign hjá TR upp á samtals 2 milljarða króna en 44% hafa fengið ofgreitt, samtals 3,4 milljarða króna. Meðalupphæð inneigna sem lífeyrisþegar eiga hjá TR er 84 þúsund krónur en meðalskuld þeirra sem hafa fengið ofgreitt er 135 þúsund krónur.

Uppgjör vegna endurreiknings

TR mun gera upp við þá lífeyrisþega sem eiga inneign með eingreiðslu þann 1. júlí næstkomandi. Innheimta skulda sem orðið hafa til vegna ofgreiðslu á síðasta ári hefst hins vegar þann 1. september næstkomandi. Miðað er við að skuldin verði greidd á 12 mánuðum en ef það reynist lífeyrisþegum íþyngjandi er hægt að semja um lengri tíma.

Niðurstöður á Mínum síðum

Lífeyrisþegar geta skoðað niðurstöður endurreikningsins á Mínum síðum á tr.is. Næstu daga verður einnig send tilkynning í pósti til þeirra sem þurfa að greiða til baka vegna ofgreiðslu nema þeir séu virkir notendur á Mínum síðum og til dánarbúa.

Lífeyrisþegar eru hvattir til að skoða niðurstöðu sína á Mínum síðum. Einnig er hægt að óska eftir að fá niðurstöðuna senda í pósti á tr.is, með því að hafa samband við stofnunina í síma 560 4400 og umboð sýslumanna um land allt eða með því að senda tölvupóst á tr@tr.is. Þá er algengum spurningum varðandi endurreikninginn svarað á tr.is undir liðnum spurt og svarað:

http://www.tr.is/spurt-og-svarad/endurreikningur/

Nánari upplýsingar hjá upplýsingafulltrúa TR í síma 560 4400 og á kynningarmal@tr.is.