fbpx

 

Þórný Þórarinsdóttir með Fjöreggið sem hún tók við úr höndum Jórunnar Óskar Frímannsdóttur formanni Öldrunarráðs Íslands

 

Þórný Þórarinsdóttir hlaut Fjöregg Öldrunarráðs Íslands á aðalfundi félagsins sem haldinn var 29. nóvember sl.

 

Fjöreggið er árlega veitt til einstaklings, stofnunar eða félagasamtaka sem þykja hafa unnið gott og óeigingjarnt starf í þágu aldraðra. Öldrunarráði bárust tvær tilnefningar um Þórnýju sem er vel að Fjöregginu komin.

Í áravís hefur Þórný heimsótt aldraða sem ekki eiga heimangengt og lætur ekkert aftra sér. Oft er um jafnaldra hennar að ræða á hjúkrunarheimilum en Þórný er níræð. Hún fer í heimsóknirnar með strætisvagni, leið 14, hvernig sem viðrar. Oftar en ekki eru heimabakaðar pönnukökur í farteskinu hennar sem hún hún gefur þeim sem hún er að heimsækja.

Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa er hefð fyrir því að veita styrki úr rannsóknarsjóði Öldrunarráðs Íslands sem kenndur er við Gísla Sigurbjörnsson fyrrum forstjóra á Grund.

Að þessu sinni ákvað stjórn Öldrunarráðs að styrkja tvö verkefni, Snjallhreyfilausnir og Næringarástand íbúa hjúkrunarheimilis á Akureyri um 250.000 kr. hvort.

Fyrra verkefnið stefnir að því að fara í notendaþróun og samvinnu við stofnanir og stofur á Norðurlandi sem gætu nýtt sér kerfið eftir aðgerðir og við endurhæfingu sem og til að auka líkamlega getu eldri einstaklinga.

Hitt verkefnið lýtur að því að kanna næringarástand íbúa hjúkrunarheimila hérlendis til að koma inn með íhlutandi aðgerðir til þeirra sem á þurfa að halda.

 

Heimasíða Öldrunarráðs Íslands