- This event has passed.
Félags- og vinnumarkaðsráðherra veitir LEB styrk
16 feb @ 13:00 - 14:00
Félags- og vinnumarkaðsráðherra veitir ýmsum félagasamtökum styrki vegna verkefna og reksturs þeirra. Ráðherra hefur ákveðið að veita LEB styrk
Vísað er til umsóknar um styrk á grundvelli auglýsingar 15. september sl. um úthlutun styrkja til félagasamtaka til verkefna og starfsemi sem heyra undir málefnasvið ráðuneytisins.
Félags- og vinnumarkaðsráðherra býður styrkþegum að vera viðstaddir athöfn og veita styrknum viðtöku, föstudaginn 16. febrúar kl. 13.00 á Hótel Reykjavík Natura, Nauthólsvegi 52.
Formaður LEB, Helgi Pétursson og skrifstofustjóri LEB, Viðar Eggertsson, mæta þar fyrir hönd LEB.
Undirritun styrksamkomulags fer fram með rafrænni undirritun að lokinni styrkúthlutun.