- This event has passed.
Aðalfundur Almannaheilla, samtaka þriðja geirans
2 jún 2022 @ 15:30 - 18:00
Aðalfundurinn verður haldinn fimmtudaginn 2. júní nk. kl. 15.30 í húsi Krabbameinsfélagsins við Skógarhlíð 8, Reykjavík.
Fundarstjóri verður Breki Karlsson.
Í lögum samtakanna segir:
- gr
Aðalfundur Almannaheilla fer með æðsta vald og ákvörðunarrétt í málefnum samtakanna. Skal hann að jafnaði haldinn fyrir 15. júní ár hvert. Senda skal út fundarboð til aðildarfélaga með minnst fjögurra vikna fyrirvara. Í aðalfundarboði skal kynna dagskrá, fundartíma og fundarstað. Aðalfundurinn telst lögmætur ef löglega er til hans boðað. - gr.
Aðildarsamtökin eiga rétt á einum fulltrúa á aðalfundinn hvert. Aðildarsamtök sem greiða félagsgjöld samkvæmt efri þrepum í félagsgjaldaskrá Almannaheilla skulu eiga rétt á viðbótarfulltrúum, einum fyrir hvert þrep.
Á dagskrá aðalfundar er eftirfarandi atriði:
- Kosning fundarstjóra og fundarritara
- Ávörp gesta
- Skýrsla stjórnar um nýliðið starfsár og starfið framundan
- Skýrsla um fjárhag samtakanna
- Umræður um skýrslur og afgreiðsla ársreiknings
- Kosning stjórnar og skoðunarmanna
- Ákvörðun um gjaldskyldu aðildarfélaga
- Lagabreytingar
- Önnur mál