Dagskrá
landsfundar Landssambands eldri borgara 23. – 24. maí 2017
haldinn í Hraunseli, félagsheimili eldri borgara í Hafnarfirði
Þriðjudagur 23. maí
11:30 Afhending fundargagna hefst
13:00 Setning landsfundar, Haukur Ingibergsson formaður LEB
Ávarp Forseta Íslands, Guðni Th. Jóhannesson
Ávarp félags- og jafnréttismálaráðherra, Þorsteinn Víglundsson
Ávarp bæjarstjórans í Hafnarfirði, Haraldur L. Haraldsson
13:40 Kosning embættismanna fundarins
- Kosning tveggja fundarstjóra
- Kosning tveggja fundarritara
- Kosning kjörbréfanefndar
Inntaka nýrra aðildarfélaga
Skýrsla stjórnar
- Skýrsla formanns, Haukur Ingibergsson
- Skýrsla gjaldkera, Ástbjörn Egilsson, lagðir fram ársreikningar LEB 2015 og 2016
Umræða um skýrslu stjórnar
Afgreiðsla ársreikninga
Lögð fram drög að fjárhagsáætlun og tillaga um árgjald 2018 og 2019
Afgreiðsla tillögu um árgjald
15:30 Kaffihlé
16:00 Kynntar ályktanir fundarins, Sigurður Jónsson, formaður málefnanefndar
16:20 Starf málefnanefnda
- Kjaranefnd
- Heilbrigðisnefnd
- Félagsmálanefnd
- Laganefnd
18:30 Í beinu framhaldi af starfi málefnanefnda verður fordrykkur í boði Hafnarfjarðarbæjar á veitingastaðnum Kænunni við Hafnarfjarðarhöfn og kvöldverður sem kostar 2.500 kr. á mann sem greiðast við afhendingu fundargagna.
Miðvikudagur 24. maí
09:00 Starf málefnanefnda
09:30 Afgreiðsla mála
11:00 Kosningar
- kosning formanns í 2 ár
- kosning 4 aðalmanna og 3 varamanna í stjórn LEB í 2 ár
- kosning 2 skoðunarmanna ársreiknings LEB og ”Listin að lifa” og 2 til vara í 2 ár
- kosning 2 aðalmanna og 2 varamanna í ritstjórn ”Listin að lifa” í 2 ár.
11:30 Önnur mál
12:00 Fundarslit